Einstaklingsmót í desember

Félagsmenn geta mætt þegar þeir vilja og safna umferðum og steinum.

Dagana 10, 15 og 17 des. er ætlunin að vera með einstaklingsmót sem virkar þannig að þeir félagar sem mæta draga sig í lið og stöðu í liðinu og spila þrjár umferðir. Síðan verður dregið aftur sama kvöld og spilaðar aðrar þrjár umferðir. Liðsmenn fá skráðar unnar umferðir og steina á sig. Ekki verða talin stig fyrir unna leiki. Í lokin gilda umferðir á undan steinum.