Byrjendur og fleiri !

Fyrir þá sem eiga eftir að greiða æfingargjöld eða vilja spyrja út í æfingagjöldin, þá mun Ollý gjaldkeri og formaður Hokkídeildar SA verða inn í skautahöll á fimmtudaginn 11 desember milli 16 og 17 á æfingatíma byrjenda.  Hún mun taka við greiðslum og svara spurningum.

Minni á að ávísunin frá Akureyrarbæ fellur úr gildi 20 des, þannig að ef þið viljið setja hana upp í æfingargjöldin þá er best að hafa hana meðferðis.  Krakkar mega ekki keppa á vegum SA nema vera búnir að ganga frá æfingagjöldum.  Athugið að allir keppendur 16 ára og yngri á vegum SA eru tryggðir í keppni á vegum ÍHÍ.