Bikarmótið: Myndband úr úrslitaleiknum

Lokamínútur úrslitaleiks Bikarmótsins voru teknar upp á myndband sem nú er búið að klippa saman.

Áhorfendur eru beðnir um að taka viljann fyrir verkið. Notast var við vefmyndavél á fartölvu, tölvunni stillt upp á stól uppi á borði uppi á svölunum í Skautahöllinni og fréttaritari lýsti jafnóðum því sem fyrir augu bar. Reyndar uppgötvaði hann síðan eftir á að hann hefði getað þysjað (zoom) inn með vefmyndavélinni þannig að í mynd hefði verið minna af auðu svelli og meira af krullu.

Við verðlaunaafhendinguna prófaði fréttaritari síðan að halda á fartölvunni rétt eins og hann væri með kvikmyndatökuvél á öxlinni og myndaði þannig þegar liðin fengu verðlaunapeningana sína - en svo tæmdist rafhlaðan áður en Garpar fengu bikarinn.

Smellið á tengilana hér að neðan til að skoða myndbandið. Góða skemmtun!