Bikarmótið: Ís-lendingar og Víkingar í úrslit

Framlengt í öðrum undanúrslitaleiknum.

Undanúrslit Bikarmóts Krulludeildar fóru fram í gærkvöldi. Víkingar sigruðu Svartagengið, 6-4, og Ís-lendingar höfðu betur gegn Útlögum, 5-4, eftir aukaumferð þar sem jafnt var að loknum sex umferðum.

Það verða því Ís-lendingar og Víkingar sem eigast við í úrslitaleik Bikarmótsins miðvikudagskvöldið 14. desember.

Sjá öll úrslit í excel-skjali hér.