Artís Tannlæknastofa styrkir Vormót SA með nýjum vestum

Vormótið hjá hokkídeild SA stendur nú sem hæst en mótið er innanhússmót sem haldið er ár hvert í maí með það að markmiði að skapa skemmtilega og jákvæða keppni meðal iðkenda félagsins.

Glöggir áhorfendur hafa eflaust tekið eftir nýjum og glæsilegum vestum sem krakkarnir hafa skartað á mótinu. Vestin voru keypt með styrk frá Artís Tannlæknastofu sem styrkti deildina sérstaklega til kaupanna.Vestin eru í fimm litum og merkt SA-logo félagsins, sem gerir auðvelt að skipta upp liðum og skapa skemmtilega og lifandi umgjörð í kringum leikina.

Foreldrafélag SA færði Rögnvaldi Björnssyni tannlækni hjá Artís Tannlæknastofu blómvönd að þakklætisvotti þegar hann kom að fylgjast með fjárfestingunni í notkun á Vormótinu. Við hjá SA erum virkilega þakklát fyrir þennan mikilvæga stuðning sem mun nýtast barnastarfinu afar vel á komandi árum.