Áramótamótið á mánudagskvöld

Dagskrá hefst um kl. 19:15 í fundarsalnum. Leikir byrja um kl. 20:00.

Fyrir leiki kvöldsins verða krullumaður og krullukona ársins kynnt og viðurkenningar veittar fyrir aðventumótið (einstaklingskeppnina)  Dregið verður í lið rétt fyrir leik og fer það eftir fjölda þátttakenda hvaða leikkerfi verður leikið eftir. Ef liðin verða fjögur leika allir við alla,  ef liðin verða fleiri leikum við eftir Schenkel kerfinu sem er stig, þá umferðir og síðan steinar. Áætlað er að byrja að spila kl. 20:00. Veitingar í boði krulludeildar.