Áramótamótið 2023

Allir velkomnir, vanir og óvanir, ungir og gamlir. Mæting er kl 19:30 og reiknað er með að byrja að spila um kl 20:00. Eins og venjulega drögum við í liðin og reynum að blanda vönum og óvönum saman í lið nema menn komi með lið sem vill spila saman. Spilaðir verða stuttir leikir og á milli leikja getur fólk gætt sér á léttum veitingum í boði Krulludeildar. Aðalmálið að fólk skemmti sér saman þó keppnisskapið sé ekki langt undan. Þeir sem hafa áhuga eru beðnir um að skrá sig á viðburðin á Facebook-síðunni okkar. Annars geta allir mætt sem vilja þó þeir skrái sig ekki.