Akureyrarmótið

Fífur og Víkingar í úrslit.              

 

Undanúrslit Akureyramótsins fóru fram í kvöld. Víkingar sigruðu Ullevål örugglega 10 - 3 og Fífur unnu góðan sigur á Görpum 9 - 4. Þessi úrslit þýða að Fífur og Víkingar leika til úrslita um fyrsta sætið en Garpar og Ullevål leika um bronsið. Skytturnar unnu Svartagengið eftir framlengdan leik, en eftir 6 umferðir var staðan 5 - 5 og þurfti því að leika aukaumferð sem Skytturnar unnu með 3 steinum og endaði leikurinn því 8 - 5. Bragðarefir unnu stóran sigur á Riddurum 10 - 2.  Lokaumferðin verður leikin mánudaginn 24. nóvember.  Minni samt á að það er krulla á miðvikudagskvöld.  Leikjauppröðun í lokaumferðinni:

2FífurVíkingar 1 sæti
3Garpar Ullevål 3 sæti
4BragðarefirSkyttur 5 sæti
5RiddararSvartagengið 7 sæti