2 leikir hjá 2. flokki um helgina

Um helgina mun 2. flokkur okkar standa í stórræðum er þeir halda suður yfir heiðar og takast á við Bjarnarmenn í fyrstu viðureignum liðanna í nýjum 2. flokki.  Leiknir verða tveir leikir, sá fyrri í kvöld kl. 18:15 og sá síðari við fyrsta hanagal í fyrramálið kl. 08:30.

Leikmenn 2. flokks eru leikmenn fæddir 1990 – 1987 en flestir spila þeir einnig í meistaraflokki.  Spilaðar verða 6 umferðar í vetur sem þýðir 12 leiki fyrir okkar menn, 6 heima og 6 úti.  Búast má við mikilli spennu í þessum aldursflokki og fyrirfram er gert ráð fyrir jöfnum viðureignum þar sem ekkert er gefið eftir.  Við ætlum okkur í sigur í þessum flokki í vetur og ekkert múður – áfram SA!