Karfan er tóm.
Þó flestir iðkendur séu nú að taka þátt í æfingabúðum hjá okkur og nýtt hokkí tímabil handan við hornið er ekki úr vegi að rifja upp lokin á því liðna þar sem fréttaskrif frá lokahófi deildarinnar fórust fyrir vor !
þegar hefðbundnum æfingum lauk í vor héldum við að venju vormót í maímánuði fyrir U14 og yngri, þátttaka var góð, spilað í 4 deildum alveg niður í krílahóp. Í lok mótsins hélt Foreldrafélagið lokahóf fyrir þátttakendur, allir fengu verðlaun og viðurkenningu eftir veturinn auk þess sem viðurkenningar voru veittar fyrir góðan árangur í mótinu.
Lokahóf eldri flokka var hins vegar haldið á Vitanum þar sem gestir skemmtu sér undir veislustjórn Arndísar og Sollu Smára, nutu ljúffengra veitinga og rifjuðu upp hápunkta úr leikjum vetrarins hjá hverjum flokki. Formaður deildarinnar flutti fáein orð, færði m.a. góðar þakkir til allra þeirra sem eru til staðar og vinna að hag deildar og leikmanna ár eftir ár. Verðlaun voru veitt fyrir frammistöðu auk þess sem meistara flokkarnir færðu sínu dygga aðstoðar fólk þakklætisvott fyrir veturinn. Ara, Eika og Leibba voru færðar sérstakar þakkir fyrir störf sín og framlag í þágu deildarinnar um árabil en þeir tveir fyrrnefndu eru nú að stíga úr stjórn hokkídeildarinnar eftir nokkurra ára setu þar. Þeir verða þó skammt undan og munu ekki liggja á liði sínu frekar en fyrri daginn. Það er alltaf gott að koma saman í lok tímabils, fara yfir veturinn, treysta böndin og finna SA hjartað slá í takt með öllum hinum um leið og við látum okkur hlakka til næsta tímabils.
Meðfylgjandi myndir skýra betur frá verðlaunum og viðurkenningum, fyrst sjáum við þátttakendur í Deild 1 í Vormóti SA og svipmynd frá lokahófi og pylsupartýi Foreldrafélagsins, eftir það koma myndir af eldri verðlaunahöfum.
Handan við hornið er ekki aðeins nýtt tímabil með nýjum áskorunum heldur er það afmælis tímabil með uppákomum því tengdu en Skautafélag Akureyrar var stofnað 1. janúar 1937 og fagnar því 90 árum þann 1. janúar 2027.
Leikmenn og þjálfarar í Deild 1 með blönduðum liðum úr U12 og U14, áttu síðasta leikinn á Vormóti SA 2026.
Deild 1, Besti sóknarmaður: Sindri Leo Broers, Mikilvægasti leikmaður græna liðsins: Þórdís Lilja Þórisdóttir, Bestu varnarmaður mótsins: Alexandra Jónsdóttir, Mikilvægasti leikmaður svarta liðsins: Bonný Lilja S. Ingvarsdóttir, Besti markmaður mótsins: Khamil Sophia Nunez Martinez, Mikilvægasti leikmaður Bláa liðsins: Sær Borghildar Guðlaugsson, Mikilvægasti leikmaður appelsínugula liðsins: Víkingur Hrafnsson, Mesta fyrirmynd mótsins: Ólafur Elías Ottósson Schiöth
Margir svangir munnar að metta eftir góða hokkíleiki.
U14 Mestu framfarirnar: Guðrún Ásta, Vinnuhesturinn: Berglind Huld, Mikilvægasti Leikmaðurinn: Garðar Breki, Besti liðsfélaginn: Jón Halldór.
U16 Mikilvægasti leikmaðurinn: Kristján Ingi, Besta fyrirmyndin: Kristín Ása, Mestu framfarirnar: Victor Radiskovic
U16 Kvenna, Mikilvægasti leikmaðurinn: Guðrún Ásta, Besta Fyrirmyndin: Aníta Júlíana, Mestu framfarirnar: Hjördís Helga
U18 Besta fyrirmyndin: Bjartur Westin, Mestu framfarirnar: Magnús Sigurður, Mikilvægasti leikmaðurinn: Askur Ari
U22 Mikilvægasti leikmaðurinn: Elvar Ingi, Besta fyrirmyndin: Mikael Darri, á myndina vantar Elías Orra sem hlaut verðlun fyrir Mestu framfarirnar
Mfl. kvenna Besta fyrirmyndin: Eyrún Arna, Mikilvægasti leikmaður tímabilsins: Silvía Rán, Mestu framfarirnar: Aníta Júlíana
Mfl. karla Besta fyrirmyndin: Bjarmi, Mestu framfarirnar: Bjarki Þór, Mikilvægasti leikmaður tímabilsins: Hafþór Andri
Önnur verðlaun; Jóns Gísla bikarinn, Þjálfarinn 2026: Björn Már Jakobsson, "Það er sama hvað á dynur hjá okkur, Bjössi stendur vaktina hjá strákunum og passar upp á sína". Ingvars bikarinn, Varnarmaðurinn 2026: Magdalena Sulova. Ollýar bikarinn, Sjálboðaliðinn 2026: Ásgeir Freyr Þórsson, "Það er erfitt að velja úr öllum þeim fjölda sjálfboðaliða sem aðstoða okkur á svo marga vegu. Að þessu sinni varð fyrir valinu einstaklega ljúfur, bóngóður og jákvæður sjálfboðaliði sem vann á öllum leikjum beggja meistaraflokka, lætur sitt ekki eftir liggja í fjáröflunum fyrir deildina eða annað sem beðið er um. Svo spillir ekki að hann er yfirleitt rauðklæddur frá toppi til táar á leikjum". Söruh bikarinn, Sóknarmaðurinn 2026: Garðar Breki Helgason Jakobs bikarinn, Markamaðurinn 2026: Elvar Darri Sæmundsson

