Karfan er tóm.
Aðalfundur Skautafélag Akureyrar fór fram á fimmtudagskvöld í félagssalnum í Skautahöllinni. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf með skýrslu um starfsemi félagsins, skýrslu um fjárhag, reikninga og fjárhagsáætlun, kosningu stjórnar og önnur mál. Ingibjörgu Magnúsdóttur var veitt gullmerki félagsins fyrir störf sín fyrir félagið síðastliðin 17 ár.
Í skýrslu formanns félagsins kom meðal annars fram að árangur deilda félagsins á árinu 2024 var til fyrirmyndar en iðkendafjölgun var í öllum deildum og viðsnúningur í rekstri. Allar deildir skila hagnaði og skuldir eru engar. Nýja félags- og æfingaraðstaðan hefur lyft bæði faglegu starfi félagsins í nýjar hæðir. Æfingaraðstaðan utan ís er fullkomin fyrir starfsemina og iðkendur hafa aðstöðu til þess að sinna líkamlega þættinum utan ís. Öll fræðsla innan félagsins hefur stóraukist með námskeiðum,fyrirlestrum og fundum svo ekki sé minnst á félagslega þáttinn. Deildirnar hafa einnig getið aukið tekjur sínar af viðburðum með nýju aðstöðunni svo aðstöðubótin hefur gjörbreytt starfsemi allra deilda félagsins á allan hátt. Umræða í samfélaginu um aukna hörku í tali og í gjörðum hefur vart farið fram hjá nokkrum og ákvað félagið að fara stað í fornvarnarverkefni í haust. Lokaafurð þeirrar vinnu varð samskiptasáttmáli sem allir iðkendur yngri flokka tóku þátt í að útbúa og er vonin að þessi vinna og sáttmálinn muni skapa betra andrúmsloft til framtíðar. Sigurður kynnti einnig framtíðarsýn félagsins með opnara félagi þar sem fleiri geti notið árangurs og umhverfisins á útivistarsvæðinu við Krókeyri. Viðbygging með búningsklefum, krullu, bogfimi og útisvelli. Betra bílaplan með bættu öryggi. Útiræk með grillhýsi og miðstöð til hreyfingar og fleira. Vandamálin sem félagið berst við er svokallað lúxusvandamál sem fylgir fjöldun iðkenda en það hefur aukið álag á fólk og innviði félagsins. Ekki má gleyma að fjölga fólki í samræmi við fjölgun iðkenda. Framkvæmdastjóri félagsins Jón Gíslason kynnti reikninga félagsins og skýrði breytingar milli ára en 23 þúsund króna tap var á rekstri félagsins árið 2024.
Kosið var í stjórn félagsins þar sem Sigurður Sveinn Sigurðsson var endurkjörinn formaður. Í nýrri stjórn Skautafélagsins kemur Sæfríður Marteinsdóttir ný inn sem formaður listskautadeildar í stað Ingibjargar Magnúsdóttur sem hættir í stjórn samhliða formannskiptum í listskautadeild.
Stjórn Skautafélags Akureyrar:
Sigurður Sveinn Sigurðsson - formaður
Stella Pauli
Ari Gunnar Óskarsson
Davíð Valsson
Elísabet Ásgrímsdóttir
Ólafur Hreinsson
Sæfríður Marteinsdóttir
Ingibjörg Magnúsdóttir var heiðruð í lok fundar og veitt gullmerki félagsins fyrir einstakt starf sitt í þágu Skautafélagsins. Hún hefur starfað samfleytt fyrir félagið í 17 ár og sinnt fjölbreyttum stjórnarstörfum, bæði fyrir listskautadeildina og aðalstjórn. Auk þess hefur hún lagt sitt af mörkum sem sjálfboðaliði og gegnt formennsku í listskautadeildinni í fimm tímabil. Ingibjörg hefur unnið ótrúlegt og óeigingjarnt starf innan félagsins og skilar nú listskautadeildinni í frábæru standi til nýrrar stjórnar. Skautafélagið er henni ákaflega þakklátt fyrir þetta mikilvæga og verðmæta framlag til félagsins og iðkenda í gegnum árin.