Karfan er tóm.
Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí hefur leik í dag á Heimsmeistaramótinu í II deild A sem fer fram í Bled í Slóveníu. Ísland mætir heimaliðinu Slóveníu í fyrsta leik kl. 17:30 á íslenskum tíma. Önnur lið í riðlinum eru Pólland, Ástralía og Taívan en Norður-Kórea dró sig úr keppni skömmu fyrir mót og verða því bara 5 lið í riðlinum í ár. Kvennalið SA á 10 leikmenn í liðinu ásamt fleirum sem spila erlendis og með öðrum félagsliðum. Hægt er að fylgjast með stöðu leikja og tölfræði á heimasíðu alþjóða íshokkísambandsins og leikirnir verða sýndir í beinu streymi á icehockeyiceland.tv.
Leikmenn A-landsliðs kvenna
Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir
Amanda Bjarnadóttir
Andrea Diljá Bachmann
Anna Sonja Ágústsdóttir
Bríet María Friðjónsdóttir
Díana Lóa Óskarsdóttir
Elísa Sigfinnsdóttir
Eva Hlynsdóttir
Eyrún Arna Garðarsdóttir
Friðrika Ragna Magnúsdóttir
Gunnborg Petra Jóhannsdóttir
Herborg Rut Geirsdóttir
Katrín Rós Björnsdóttir
Kolbrún Björnsdóttir
Laura-Ann Murphy
Magdalena Sulova
María Guðrún Eiríksdóttir
Saga Margrét Sigurðardóttir
Silvía Rán Björgvinsdóttir
Sólrún Assa Arnardóttir
Sunna Björgvinsdóttir
Teresa Regína Snorradóttir
Starfsmenn liðsins
Jón Benedikt Gíslason, Aðalþjálfari
Gunnar Guðmundsson, Aðstoðarþjálfari
Shawlee Gaudreault, Markmannsþjálfari
Vera Ólafsdóttir. Kírópraktor/Heilbrigðisstarfsmaður
Hulda Sigurðardóttir, Tækjstjóri
Brynja Vignisdóttir, Liðsstjóri
Við óskum liðinu góðs gengis á mótinu, áfram Ísland!