Karfan er tóm.
Íslenska karlalandsliðið í íshokkí hefur leik á Heimsmeistaramótinu í II deild B á morgun í Sofíu í Búlgaríu. Liðið hefur verið við æfingar á staðnum frá því á föstudag og undirbúningur gengið vel. Í gær spilaði Ísland æfingaleik gegn heimamönnum í Búlgaríu og lauk leiknum með öruggum 10–2 sigri íslenska liðsins.
Fyrsti leikur Íslands á mótinu er gegn Taívan og hefst hann kl. 13:30 á íslenskum tíma. Auk þess eru Ísrael, Kyrgistan, Nýja Sjáland og Búlgaría í riðlinum.
Hægt er að fylgjast með tölfræði og úrslitum á heimasíðu alþjóða íshokkísambandsins og verða leikir mótsins sýndir í beinni útsendingu á icehockeyiceland.tv.
Skautafélag Akureyrar á sterka fulltrúa í landsliðinu í ár með 10 leikmenn í hópnum, auk annarra sem tengjast félaginu og eru í fararstjórn.
MARKMENN
Helgi Ívarsson
Róbert Steingrímsson
VARNARMENN
Arnar Helgi Kristjánsson
Atli Sveinsson
Gunnar Arason
Ormur Jónsson
Róbert Pálsson
Viktor Mojzyszek
Þorgils Eggertsson
SÓKNARMENN
Alex Máni Sveinsson
Andri Már Mikaelsson
Bjarmi Kristjánsson
Gunnlaugur þorsteinsson
Hákon Martein Magnússon
Heidar Gauti Jóhannsson
Hektor Hrólfsson
Jóhann Leifsson
Kári Arnarsson
Níels þór Hafsteinsson
Styrmir Maack
Ólafur Baldvin Björgvinsson
Unnar Hafberg Rúnarsson
STARFSMENN
Martin Struzinsky, Aðalþjálfari
Rúnar F. Rúnarsson, Aðstoðarþjálfari
Robin Danielsson, Markmanns - og Videoþjálfari
Marcin Mojzyszek, Tækjastjóri
Jóhann Þór Jónsson, Sjúkraþjálfari
Kristján Sturluson, Liðsstjóri
Við óskum liðinu góðs gengis á mótinu.