Frá Skautahöllinni til konungshallarinnar – og aftur heim að leiða næstu kynslóð

Það hefur verið líf og fjör í lífi Sunnu Björgvinsdóttur fyrirliða íslenska kvennalandsliðsins og leikmanns Södertalje SK eftir að keppnistímabilinu hennar lauk á ísnum um miðjan apríl en hefur hún staðið í ströngu utan ís og hefur leiðtogahlutverkið fengið nýja vídd. Sunna átti frábært tímabili á ísnum í vetur eins og þeir sem hafa fylgst með vita en hún fór fyrst með Södertalje alla leið í úrslitaeinvígi um sæti í SDHL deildinni og leiddi svo íslenska kvennalandsliðið til síns besta árangurs á Heimsmeistaramóti frá upphafi. Frá þeim tíma hefur Sunna ekki slegið slöku við því hún hefur tekið þátt í Leiðtogaráðstefnu IIHF í Tékklandi – fengist boði sænska Konungsins um boð í Sænsku konungshöllina og er nú mætt aftur á heimaslóðirnar til þessa að leiða næstu kynslóð ungra íshokkíkvenna á 25 ára afmæli kvennaíshokkís á Íslandi.

Fyrirliði meðal fyrirliða í Tékklandi

Eftir heimsmeistamótið í Póllandi var Sunna sótt af Alþjóðaíshokkísambandinu og skutlað til Tékklands þar sem henni bauðst að þátt í sérstakri leiðtogaráðstefnu stjórnenda úr kvennaíshokkíinu á heimsvísu ásamt fyrirliðum annarra kvennalandsliða (Women’s Worlds Player Leadership Summit ).

Ráðstefnan fór fram í borginni České Budějovice á sama tíma og Heimsmeistaramót kvenna fór þar fram og voru því allir fremstu leikmenn heims þar samankomnir. Á þessari viku tók Sunna þátt í umræðum, vinnustofum og tengslamyndun með öðrum leiðtogum úr kvennaíshokkíheiminum en fylgdist jafnframt með leikjunum á HM af besta stað í stúkunni og sat auðvitað úrslitaleikina þar sem boðið var uppá heimsins besta íshokkí og Bandaríkinn tryggði sér Heimsmeisaratitilinn.

Á heimleið úr Tékklandi lenti Sunna í því í flugvélinni til Íslands að sitja við hliðina á nýkrýndum heimsmeistara og fyrirliða Bandaríkjanna - Hilary Knight sem er í einu orði sagt - THE GOAT. Hilary var eðlilega upp með sér að fá að hitta Sunnu, og þær spjölluðu um heima og geima enda ekki á hverjum degi sem heimsmeistarar fá að sitja við hliðina á íslenska landsliðsfyrirliðanum.

Konunglegt boð í Svíþjóð

Áður en ferðin til Tékklands hófst hafði Sunna fengið afar sérstakt boð – frá engum öðrum en sænska konunginum sjálfum. Á dögunum hélt Karl Gústaf Svíakonungur móttöku í höllinni sinni í Svíþjóð í tilefni opinberrar heimsóknar Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Veislan var haldin til heiðurs samskiptum ríkjanna og þeim sem leggja sitt af mörkum á ýmsum sviðum – þar á meðal íþróttum.

Sunna var boðin sem fulltrúi íslensks íþróttalífs og mætti með móður sinni til veislunnar. Þar hitti hún fyrir Karl konung, aðra fulltrúa stjórnmálanna og menningar en Sunna var einkar glæsilegur fulltrúi þar fyrir íslenskt íþróttalíf ásamt móður sinni.

Til baka heim – til að leiða næstu kynslóð

Eftir þessa viðburðaríku viðurkenningarferð er Sunna mætt heim í Skautahöllina á Akureyri en nú sem skipuleggjandi og leiðbeinandi fyrir 75 ungar íshokkístelpur af öllum landinu sem eru samankomnar í hæfileikamótandi æfingabúðum sem Sunna og aðrir leikmenn íslenska kvennalandsliðsins halda á Akureyri nú um helgina. Sunna miðlar hér af reynslu sinni og tekur virkan þátt í að móta næstu kynslóð íshokkíkvenna á Íslandi, áður en hún heldur aftur til Svíþjóðar síðar í sumar og heldur áfram að ryðja brautina fyrir velgengni íslenskra íshokkíleikmanna.