Sædís og Ylfa hefja keppni á Norðurlandamótinu í dag

Landsliðshópurinn á leið á Norðurlandamótið á listskautum 2026.
Landsliðshópurinn á leið á Norðurlandamótið á listskautum 2026.

Listskautastúlkurnar Sædís Heba Guðmundsdóttir og Ylfa Rún Guðmundsdóttir stíga á ísinn í dag og hefja keppni á Norðurlandamótinu sem fer fram dagana 28. janúar - 1. febrúar í Hvidøve í Danmörku.

Skautasamband Íslands sendir sex keppendur á mótið en einnig þjálfara keppendanna, liðstjóra og fulltrúa í damóra- og tæknipanel. Sædís og Ylfa Rún hefja keppni nú í dag en Sædís hefur keppni í Junior flokki kl. 16:30 á íslenskum tíma og Ylfa Rún í Advanced Novice kl. 11:15. Keppnin er í beinu streymi hér.

Hægt er að fylgjast með hópnum á Instagram síðu ÍSS @skatingicelandofficial á meðan mótinu stendur og svo má finna upplýsingar um dagskrá og úrslit á heimasíðu mótsins

Við óskum okkar stúlkum góðs gengis og fylgjumst vel með.