Karfan er tóm.
Hundrað manns sem komu saman við skautahöllina í gær og gengu eða hlupu til stuðnings hlaupurum Reykjavíkurmaraþonsins til minningar og áheita í málstað okkar ástkæru Sólveigar Huldu og barnabarns hennar litlu Sólveigar Huldu.
Það var mögnuð appelsínugul fylking úr samfélaginu okkar sem spretti af stað frá höllinni í gærmorgun, mátti þar sjá sjálfboðaliða, dómara, leikmenn, stjórnarfólk, fjölskyldu, vini og velunnara Sólveigar og fjölskyldu.
Gengið var upp Miðhúsabraut, norður Þórunnarstræti að sjúkrahúsinu, niður Spítalaveginn og suður Aðalstrætið og endað í höllinni þar sem grillaðar pylsur og drykkir biðu þátttakenda. Það er óhætt að segja að þetta var góð stund, þar sem ungir sem aldnir komu saman, elsti að nálgast 95 árin og yngsta rétt 3 mánaða.
Það var gott að hittast, hreyfa sig og njóta stundarinnar í minningu Sollu.
Á facebooksíðu deildarinnar má sjá myndir sem sýna betur frá öllu saman https://www.facebook.com/savikingar/