Karfan er tóm.
SA Jötnar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í U18 um helgina með 10-2 sigri á Fjölni og 6-4 sigri á SR. Jötnar hafa þar með unnið 9 af 11 leikjum sínum í vetur. SA teflir fram tveimur liðum í U18, en SA Víkingar sitja í öðru sæti með 7 sigra í 11 leikjum. Bæði lið eiga einn leik eftir á tímabilinu, innbyrðis viðureign, en sá leikur dugar Víkingum ekki til að ná toppsætinu. SR og Fjölnir hafa bæði lokið leikjum sínum á tímabilinu.
Jötnarnir Mikael Eiríksson og Askur Reynisson eru langstigahæstu leikmenn tímabilsins. Mikael hefur skorað 25 mörk og er með 39 stig ásamt 45 í plús/mínus, en Askur hefur skorað 19 mörk, er með 37 stig og 48 í plús/mínus. Alex Ingason er stigahæsti leikmaður SA Víkings og jafnframt þriðji stigahæsti leikmaður mótsins með 14 mörk og 32 stig. Stigahæsti varnarmaður mótsins er Magnús Sigurólfsson, varnarmaður Jötna, með 26 stig.
Í marki Jötna er Elvar Sigurðsson með hæsta markvörsluhlutfallið, 89,63% í 6 leikjum, og næstur kemur Elías Rúnarsson hjá SA Víkingum með 87,28% í 5 leikjum.
Við óskum SA Jötnum innilega til hamingju með frábært tímabil og Íslandsmeistaratitilinn.