Fréttir af okkar leikmönnum í Evrópu

Nú þegar fer að líða að hápunkti íshokkítímabilsins í Evrópu ætlum við að flytja fregnir af stöðu leikmanna úr SA sem leika með liðum víðsvegar um álfuna. Úrslitakeppni sænsku NDHL deildarinnar hefst í dag og þar eigum við þrjár leikmenn sem berjast um meistaratitilinn og sæti í SDHL. Einnig eru leikmenn okkar í Hollandi, Þýskalandi og Danmörku að undirbúa sig fyrir úrslitakeppnir á næstu vikum.

Sunna Björgvinsdóttir hefur átt mjög gott tímabil með Södertälje SK í NDHL í Svíþjóð og hefur verið á meðal bestu leikmanna deildarinnar eins og undanfarin ár. Hún leiðir lið sitt í stigum með 21 stig í 20 leikjum en liðið hefur tryggt sér sæti í 8 liða úrslitum og mætir þar Örebro í fyrsta leik í dag.

Katrín Rós Björnsdóttir leikur einnig með Södertälje SK og er orðin ein af máttarstólpunum í varnarlínu liðsins. Katrín verður í sviðsljósinu í einvígin gegn sínu fyrrum liði í Örebro en hún kom þaðan til Södertalje fyrir þetta tímabil.

Saga Blöndal Sigurðardóttir er lykilleikmaður IF Björklöven bæði í vörn og sókn en hún er búin að skila 26 stigum í 32 leikjum úr varnarlínunni í vetur. Björklöven hefur einnnig úrslitakeppnina í dag og mætir þar Rögle í fyrstu umferð.

Gunnar Arason hefur staðið sig vel með Gröningen í næst efstu deild í Hollandi en hann er þar á meðal stigahæstu leikmanna liðsins úr vörninni þar sem hann er kominn með 14 stig í 17 leikjum. Gröningen er í 7. sæti og er búið að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni sem hefst í mars.

Helgi Ívarsson er á sínu fyrsta tímabili sem aðalmarkvörður Baden Rhinos í fjórðu efstu deild Þýskalands. Helgi hefur leikið feykilega vel í vetur og er búin að eigna sér byrjunarliðsstöðuna og spilar flest alla leiki en liðið er í 4. sæti síns riðils eins og stendur.

Ólafur Baldvin Björgvinsson er á sínu fyrsta tímabili með Esbjerg í dönsku 2. deildinni en liðið er lang efsta lið deildarinnar og tryggt inn í úrslitakeppnina. Óli Baddi hefur staðið sig virkilega vel með liðinu í vetur er var fjarverandi vegna meiðsla um tíma en er kominn aftur á ísinn og er búin að skila 7 stigum í 13 leikjum með liðinu.

Birta Júlía Þorbjörnsdóttir markvörður leikur með Odense í efstu deild í Danmörku. Odense er í öðru sæti deildarinnar og Birta verið í baráttu um byrjunarliðsstöðuna í vetur. Birta hefur spilað vel í þeim leikjum sem hún hefur byrjað og þeir allir unnist.

Díana Óskarsdóttir markvörður leikur með ungmennaliði Almtuna og hefur einnig verið í baráttu um að fá leiki með aðalliðinu. Díana er þar í samkeppni annan íslenskan markvörð, Andreu Bachmann, sem leikur með sama liði.

Við munum flytja áframhaldandi fréttir af gengi okkar leikmanna í úrslitakeppnunum á samfélagsmiðlunum okkar á komandi vikum.