Karfan er tóm.
Iðkendur/forráðamenn
Allir þeir sem tóku myndir af Sparisjóðsmótinu um helgina og eru til í að senda mér nokkrar til að setja inná síðuna, þá endilega sendið þær til mín á
netfangið; krikri@akmennt.is
Með fyrirfram þökkum
Kristín K
Til að styrkja börnin okkar og félagið erum við með wc- og eldhúspappír til sölu, þ.e.
börnin /foreldrar þeirra geta fengið hjá okkur pappír til að selja vinum og ættingjum.
Við erum einnig búin að
Þeir peningar sem safnast með þessu móti munu renna í sameiginlegan sjóð sem notaður verður til að borga niður kostnað vegna ferð á mót, m.a. til að greiða niður gistingu, rútu osfrv. Einnig til að
Allar hugmyndir um frekari fjáröflun til að styrkja Iðkendur í Listhlaupadeildina okkar eru vel þegnar.
Ef ykkur vantar upplýsingar hafið samband við Allý í síma 895-5804 eða 462-5804
Kvennaliðið er nú í Reykjavík að taka þátt í Icelandair Cup í boði Bjarnarins. Stelpurnar spiluðu sinn fyrsta leik á fimmtudagskvöldið gegn Bison Ladies og gerðu sér lítið fyrir og unnu þann leik 4 - 1. Mörkin skoruðu Sólveig Smáradóttir, Guðrún Blöndal, Jóhanna Sigurbjörg og Anna Sonja.
Í gærkvöldi spiluðu þær gegn Kingston Dimonds, sem talið er sterkasta liðið á mótinu, og töpuðu fyrir þeim 3 - 0. Þær voru engu að síður ánægðar með árangurinn gegn sterku liði.
Í dag spilar liðið tvo leiki, þann fyrri nú í hádeginu gegn dönsku liði og þann síðari í kvöld gegn Birninum. Síðasti leikur liðsins verður svo á morgun.
Kvennalið SA spilaði tvo leiki í dag á icelandair cup í Egilshöll. Sigurvissar fóru í þeir í fyrri leikinn og ætlu sér að rúlla honum upp á nýju markameti. Andstæðingarnir voru danskir og voru ekki á því að gefa neitt og leiknum lauk með 1 – 1 jafntefli. Okkar stelpur voru í sókn meira eða minna allan tímann, allt kom fyrir ekki. Eina mark liðsins skoraði Sólveig Smáradóttir.
Í kvöld mættust svo SA og Björninn í æsispennandi leik sem einnig lauk með jafntefli, 3 – 3. Mörk SA skoruðu Anna Sonja, Steinunn og Jóhanna Sigurbjörg.