Nú vitið þið leikmenn af hverju við brýnum við notkun hálshlífar!!!

Smelltu hér til að sjá meira

1000 manns í Skautahöllina

Mikill fjöldi fólks lagði leið sína í Skautahöllina á Akureyri laugardaginn 22. jan en þá var fólki boðið frítt á skauta í tilefni af heilsuátakinu "Einn, tveir og nú!". Milli átta og níu hundruð manns nýttu sér þetta góða boð sem Heilsueflingarráð og Skautahöllin stóðu fyrir. Veitingar voru í boði Nýju-Kaffibrennslunnar, Bakarísins við Brúna og Kexsmiðjunnar og eiga þau hrós skilið fyrir.

Um kvöldið stóð Krulludeild svo fyrir firmakeppni krullu þar sem 13 lið kepptu og var fjöldi manns í kringum þessa keppni (sjá nánar á curling.is ).

ATH! Breyttur æfingatími um helgina hjá 1.-3. flokki!

Vegna Íslandsmeistaramótsins núna um helgina (22.-23. janúar 2005) og þjálfara- og dómaranámskeiðs verða Iveta, Helga, Audrey, Heiða, Ásta og Erika ekki að þjálfa um helgina. Berglind Rós mun sjá um þjálfunina hjá bæði eldri og yngri flokkum ásamt stelpum úr 1. og 2. flokki sem munu aðstoða hana.

Einnig er breytt tímatafla hjá 1.-3. flokki!!!

Laugardagurinn 22. janúar

Kl. 9-10: 3. flokkur

Kl. 10-11: 1. og 2. flokkur

Sunnudagurinn 23. janúar

Kl. 17-18: 3. flokkur

Kl. 18-19: 1. og 2. flokkur

Jazzballett á Bjargi

Það verður jazzballett á Bjargi fyrir 1.-3. flokk þriðjudaginn 18. janúar og þriðjudaginn 25. janúar á sömu tímum og voru fyrir áramót.

U20 Tekið af vef ihi.is

Ísland 8 S-afríka 1 og bronsið var okkar

Ísland vann brons í kvöld með glæsilegum sigri á Suður afríku 8 - 1 strákarnir hrukku aftur í gang og sýndu sínar bestu hliðar eftir tvo slaka leiki gegn Mexíkó og Nýja Sjálandi, fyrir mótið var lið Suður Afríku álitið það sterkasta í mótinu þannig að sigurinn var sætur og liðið sýndi snilldar takta á köflum. Við verðlauna afhendingu á mótsslitum var Aron Leví Stefánsson kjörinn besti maður liðsins, Gauti Þormóðsson var stigahæsti maður mótsins með 14 stig 10 mörk og 4 stoðsendingar og Birkir Árnason var kjörinn besti varnarmaður mótsins. Nánar má lesa um leikinn á síðu IIHF www.iihf.com

U 20 tekið af vef ihi.is

Ísland - Nýja Sjáland; 3 - 5

Lið Nýja Sjálands kom ákveðið til leiks á móti þreyttum og óeinbeitum íslendingum. Mistök við innáskiptingar voru okkur dýrkeypt. Okkar strákar áttu góða spretti inni á milli en þeir duguðu ekki til. Gauti Þormóðsson átti 2 góð mörk og Birkir Árnason 1 mark. Þessi leikur var mikil vonbrigði, svo að það sé ekki meira sagt, þar sem við áttum góðan möguleika á sigra Nýsjálendinga og hafna í 2 sæti.
Besti leikmaður íslenska landsliðsins var valinn Aron Leví Stefánsson sem átti stórleik í markinu.

U 20

U 20 tapaði fyrir nýja sjálandi 5-3. Meira um leikinn síðar.

3 flokkur

3 flokkur tapaði gegn A-lið bjarnarins 0-15. Eitthvað var þráðurinn stuttur í okkar mönnum sem og í bjarnarmönnum, og þó nokkrir sendir í sturtu. Næst eiga strákarnir leik við S.R. og vonandi sýna þeir betri leik. ÁFRAM S.A.

Kvennaflokkur!!!

Kvennalið S.A. varð í kvöld íslandsmeistarar. Þær sigruðu björninn 6-2 í leik sem var hin ágæta skemmtun á að horfa. Meira um leikinn síðar.

Leikir

Já það er rétt það er hokki dagur í dag. Í dag mun kvennaliðið okkar að etja kappi við birnurnar að sunnan og ætlumst við ekkert annað en sigur. 3 flokkur mun einnig keppa við björninn og vonandi sýna strákarnir sitt rétta andlit og vinna björninn. Leikirnir verða spilaðir kl 18:00 Mfl. KVK SA-Björninn og svo kl 20:00 3fl. SA-Björninn. Við hvetjum ALLA til að mæta og styðja ykkar menn og konur. ÁFRAM S.A.!!!!!