Víkingar vs Esja á morgun kl. 19,30

Viðureignir liðanna eru orðnar 5 á þessu tímabili og hafa allar unnist á útivelli.

Annað kvöld ætla Víkingar að brjóta þessa hefð ef þess er nokkur kostur en á móti kemur að Esjumenn eru örugglega orðnir hungraðir í sigur eftir tap í síðustu 3 leikjum svo það verður örugglega þess virði að mæta í Skautahöllina á Akureyri, upplifa stemminguna og hvetja sína menn til sigurs.

Þeir sem ekki eiga heimangegnt geta fylgst með leiknum hér á SA TV í boði Skautafélags Akureyrar og Íshokkísambands Íslands.

Einnig er hægt að skoða alla heimaleiki SA og einhverja fleiri á www.ihi.is/is/upptokur

Stöðuna í deildinni má skoða hér .