Karfan er tóm.
Æfingar hjá Skautafélagi Akureyrar eru nú farnar á fullt samkvæmt æfingatöflu og starfsemi allra deilda að hefjast að nýju eftir sumarið.
Byrjendaæfingar á listskautum og hokkí hefjast í þessari viku og eru allir nýir iðkendur hjartanlega velkomnir.
Listhlaup
Byrjendaæfingar hefjast mánudaginn 24. ágúst en æfingar eru á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:00–17:30.
Upplýsingar og skráning: thjalfari@listhlaup.is
Íshokkí
Byrjendaæfingar hefjast fimmtudaginn 27. ágúst og verða á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:00–17:45.
Upplýsingar og skráning: hockeysmiley@gmail.com
Krulla
Æfingar krulludeildar eru á mánudögum kl. 19:30-21:00. Allir velkomnir - skráning fyrir fyrstu mætingu með að senda post á krulla@sasport.is
Almenningstímar hefjast í Skautahöllinni fyrstu helgina í september og fyrsta skautadiskó vetrarins verður föstudaginn 4. september.
Við hvetjum foreldra, iðkendur og allt áhugafólk um skautaíþróttir til að kynna sér æfingatöflu félagsins og taka þátt í skemmtilegu og fjölbreyttu ísstarfi í vetur.