Úrslitakeppnin í Toppdeild kvenna hefst á laugardag

Úrslitakeppnin í Toppdeild kvenna hefst næsta laugardag, 21. mars. Skautafélag Akureyrar unnu deildarmeistaratitilinn og hafa því heimaleikjaréttinn. SA tapaði aðeins einum leik í deildarkeppninni en leikirnir við SR hafa flestir verið jafnir og spennandi svo búast má við hörkuviðureign í úrslitakeppninni.
Leikið verður svo til skiptis heima og að heimann þangað til annað liðið nær að vinna þrjá leiki og tryggja sér þannig Íslandsmeistaratitlinn í íshokkí.
 
Leikirnir í úrslitakeppni kvenna:
Leikur 1: laugardaginn 21. mars á Akureyri kl. 16:45
Leikur 2: þriðjudaginn 24. mars í Reykjavík kl. 19:45
Leikur 3: fimmtudaginn 26. mars á Akureyri kl. 19:30
* 4. leikur laugardaginn 28. mars í Reykjavík kl. 17:45
* 5 leikur þriðjudaginn 31. mars á Akureyri kl. 19:30
* leikir 4 og 5 ef til koma ef annað liðið sé ekki búið að vinna 3 leiki.