Íshokkí án landamæra í heimsókn í fjórða sinn

Undanfarnar vikur hefur Skautafélag Akureyrar tekið á móti tveimur High School hópum með ungum íshokkíleikmönnum frá Kanada. Hóparnir koma í gegnum samstarf við Hockey Without Borders, en það var einmitt í gegnum þetta samstarf sem félagið komst í samband við Sheldon, yfirþjálfara SA, sem hefur verið duglegur að halda þessu samstarfi virku.

Krakkarnir og kennarar þeirra koma til Akureyrar til að æfa með okkar liðum, kynnast íslenskri hokkímenningu og skoða landið. Kanadísku tengingarnar vestur um haf eiga sinn þátt í þessu öllu saman en fyrri hópurinn kom frá heimabæ Sheldons, Kapuskasing í norður Ontario fylki í Kanada og sá síðari, sem fór frá okkur í dag, er frá Ottawa – heimabæ markmannsþjálfarans og markmans meistaraflokks, Shawlee.

Hóparnir dvöldu hjá okkur í viku í senn og æfðu alla daga á ís með jafnaldrum sínum í U16 og U18. Krakkarnir voru í vist hjá fjölskyldum jafnaldra sinna en þessar hokkífjölskyldur hafa tekið þeim með opnum örmum og elskulegheitum.

Skipulagðar ferðir og dagskrá með gestgjafafjölskyldunum hafa leitt þessa krakka um áhugaverðustu staði Akureyrar og nágrennis. Þau heimsóttu meðal annars baðströndina á Hauganesi, Mývatn, Kjarnaskóg og í Eyjafjarðarsveit þar sem þau fóru bæði á hestbak og tóku þátt í sauðburði hjá Önnu Sonju og fjölskyldu.

Það hafa myndast sterkar tengingar milli þessara frísku og skemmtilegu kanadísku gesta og íslensku krakkanna okkar. Þau hafa sést saman um allan bæ og víðar – frá morgni til kvölds, og oft langt fram á nótt, enda hefur veðrið síðustu daga og vikur boðið upp á langar bjartar nætur.

Við hjá Skautafélagi Akureyrar erum þakklát fyrir þetta dýrmæta samstarf sem býr til tengsl og tækifæri ungs fólks úr ólíkum heimum og eflir bæði vináttu og ástríðuna fyrir leiknum.