IceCup 2026 í Skautahöllinni

Alþjóðlega krullumótið IceCup hófst í dag og er haldið í Skautahöllinni í 21. skipti. Yfir 80 keppendur í 20 liðum frá 13 löndum (Þýskaland, Ungverjaland, Tékkland, Sviss, Slóvakía, Skotland, Sealand, Kanada, Holland, Fillippseyjar, England, Bandaríkin og Ísland) taka þátt í mótinu í ár en það er Krulludeild Skautafélags Akureyrar sem á veg og vanda af þessu skemmtilega móti sem laðar að mun fleiri lið en fá þáttökurétt. Opnunarhátið mótsins fór fram í gærkvöld í húsi Flugbjörgunarsveitinnar og hófst keppnin svo í morgun og stendur yfir frá morgni til kvölds næstu daga og klárast svo með úrslitaleikjum á laugardagskvöld og lokahófi. Við hvetjum fólk til þess að koma líta á keppnina en fyrir utan hörku spennandi keppni og litríka búninga liðanna þá er seld kjötsúpa og aðrar veitingar á mjög svo hóflegu verði.