Árshátíð hokkídeildar 2025

Fullur salur af SA leikmönnum, þjálfurum, foreldrum og velunnurum
Fullur salur af SA leikmönnum, þjálfurum, foreldrum og velunnurum

í lok maí hélt hokkídeildin árshátíðina sína þar sem saman komu leikmenn frá U14 upp í meistaraflokka, þjálfarar, foreldrar og velunnarar. Gestir nutu að vanda ljúffengs matar hjá Helga á Vitanum og skemmtu sér undir góðri veislustjórn Arndísar Eggerz Sigurðardóttur veislustjóra og leikmanns meistaraflokks kvenna.

Formaður deildarinnar flutti fáein orð og minntist m.a. á allt það öfluga og góða starf sem á sér stað hjá sí stækkandi deild, áskoranir sem því fylgja og þá miklu vinnu og vegferð sem hokkídeildin er þátttakandi í ásamt öðrum deildum félagsins. Þá vinnu sem farið hefur fram með virkri þátttöku iðkenda, þjáfara, starfsfólks og stjórna í fræðsluviðburðum og vinnufundum og snýr í stuttu máli að virðingu og góðum heilbrigðum samskiptum. Afrakstur vinnu vetrarins verði svo innleiddur í upphafi næsta tímabils. Eldri iðkendur, foreldrar og sjálfboðaliðar sem þekkja íþróttina vel verði að stíga enn betur inn í það hlutverk að bjóða nýtt fólk velkomið, kenna og útskýra reglur og vinnulag við íþróttina innan vallar og utan. Þannig muni hokkí fjölskyldan vaxa og dafna enn betur en hún hafi gert og SA hjartað að slá jafnvel enn taktfastar en áður, ef allir eru samstíga og vinna að sameiginlegu marki að gera gott betra.

Að vanda sýndu flokkarnir highlight myndbrot frá leikjum vetrarins og verðlaun og viðurkenningar voru veitt ásamt því að meistaraflokkarnir þökkuðu sínu dygga aðstoðarfólki vel unnin störf eftir tímabilið.

Á eftirfarandi myndum sem Ólafur Örn Þorgrímsson tók má sjá verðlaunahafa tímabilsins, við óskum þeim öllum innilega til hamingju með árangurinn. Hokkídeildin þakkar fyrir veturinn og hlakkar til að hefja starf að nýju og sjá ykkur öll endurnærð síðla sumars.

                           

U14 frá hægri: Mestu framfarir Eva Kristín Þorvaldsdóttir, Jákvæðasti og hjálpsamasti leikmaðurinn Sigrún Björk Óskarsdóttir, U16 kvk Mestu framfarirnar Hjördís Helga Þorvaldsdóttir, Mesta fyrirmyndin Elísabet Helga Ingþórsdóttir, Mikilvægasti leikmaðurinn Garðar Breki Helgason, Vinnuhesturinn Hilmar Marino Arnarsson og Unsung Hero Jónatan Þór Sigurjónsson.                           

U16 frá hægri: Mikilvægasti leikmaðurinn Mikael Darri Eiríksson, Mestu framfarir Guðmundur Jóvin Sigvaldason, Vinnuhesturinn Fjölnir Sigurjónsson, Unsung hero Finnur Bessi Finnsson, Besta fyrirmynd Víkinga Freyja Rán Sigurjónsdóttir, Besta fyrirmynd Jötna Aníta Júlíana Benjamínsdóttir.

U16 kvenna frá hægri:  Mestu framfarir Hjördís Helga Þorvaldsdóttir, Besta fyrirmyndin Helga Þórunn Gísladóttir og Mikilvægasti leikmaðurinn Díana Lóa Óskarsdóttir.                           

U18 frá hægri: Mikilvægasti  leikmaðurinn Bjarmi Kristjánsson, Mestu framfarir Aron Freyr Gautason og Besta fyrirmyndin Gabríel Snær Benjamínsson.                           

Meistaraflokkur kvenna frá hægri: Mestu framfarir Freyja Rán Sigurjónsdóttir og Amanda Bjarnadóttir sem hlaut veðlaunin Besta fyrirmyndin og Mikilvægasti leikmaður tímabilsins.  

                           

Meistaraflokkur karla frá hægri: Mikilvægasti leikmaður tímabilsins og mikilvægasti leikmaður úrslitakeppninnar Unnar Hafberg Rúnarsson, Mestu framfarir Róbert Steingrímsson, á myndina vantar Ólaf Baldvin Björgvinsson sem fékk verðlaun fyrir Bestu fyrirmyndina.  

                           

Hæfileikaríkir yngri leikmenn, þjálfari og sjálboðaliði ársins: frá hægri: Söruh bikarinn = sóknarmaður 2025 Bjarmi Kristjánsson, Jóns Gísla bikarinn = Þjálfari 2025 Ormur Jónsson, Ingvars bikarinn = Varnarmaður 2025 Elvar Skúlason, á myndina vantar Marey Viðju Sigurðardóttir sem hlaut Jakobs bikarinn = Markmaður 2025 og Heiðu Dís Jónsdóttur sem hlaut Olýar bikarinn = Sjálfboðaliði ársins.