Karfan er tóm.
U18 drengja landslið Íslands í íshokkí er nú mætt til Sarajevó í Bosníu-Hersegóvínu þar sem liðið mun keppa á HM í 3. Deild B næstu daga. SA á 12 fulltrúa í liðinu að þessu sinni og einnig aðila í fararstjórn liðsins. Auk Íslands eru Túrkmenistan, Lúxemborg, Bosnía-Hersegóvína, Taíland og Suður-Afríka í riðlinum. Ísland mætir Lúxemborg í fyrsta leik á föstudag kl. 15:00 á íslenskum tíma og ætti fyrirfram að vera þægilegur fyrsti leikur fyrir Íslenska liðið áður en við mætum Túrkmenistan og svo Taílandi sem eru bæði tvö með öflug lið. Nýtt fyrirkomulag er á þessu móti sem verið er að prófa en liðin leika fyrst 3 leiki í undanriðlum og þar á eftir spila liðin 2 leiki í undanúrslitum og úrslitakeppni. Fylgjast má með allri tölfræði, stöðu og dagskrá mótsins á heimasíðu alþjóða íshokkísambandsins. Allir leikir mótsins eru í beinu streymi á streymisveitu Íshokkísamband Íslands og aðgengilegir fyrir áskrifendur á IcehockeyIceland.tv.
Leikmenn SA í liðinu:
Við óskum liðinu góðs gengis á mótinu – Áfram Ísland!
Leikir Íslands:
13. febrúar kl. 15:00 Ísland – Lúxemborg
14. febrúar kl. 11:30 Ísland - Túrkmenistan
16. janúar kl. 15:00 Ísland - Taíland
18. febrúar undanúrslit
19. febrúar úrslit