Karfan er tóm.
SA Víkingar hefja tímabilið í Hertz-deildinni um helgina þegar liðið tekur á móti Íslandsmeisturum síðasta tímabils, Skautafélagi Reykjavíkur. Litlar breytingar eru á hóp SA Víkinga frá síðasta tímabili en hefur þó misst þrjá leikmenn en það eru landsliðsleikmennirnir Gunnar Arason, Heiðar Gauta Jóhannsson og Halldór Skúlason sem eru allir farnir til liða í Svíþjóð. En þrátt fyrir þennan missi er hópurinn þéttskipaður með góðri blöndu af gríðarlega sterkum reynsluboltum og enn stærri hóp ungra og efnilegra leikmanna sem hafa verið að gera sig gildandi í deildinni en einnig kemur ný kippa af leikmönnum inn úr unglingastarfinu. Nýr þjálfari er einnig kominn í brúnna en Jamie Dumont mun stýra liðinu í vetur og verður spennandi að fylgjast með liðinu undir hans stjórn.
Leikurinn á laugardag hefst kl. 16:45. Forsala miða er á Stubb en miðaverð er 1500 kr og frítt inn fyrir 16 ára og yngri.
Hópur SA Víkinga:
|
Ágúst Máni Ágústsson |
|
Alex Máni Ingason |
|
Andri Freyr Sverrisson |
|
Andri Már Mikaelsson |
|
Arnar Helgi Kristjánsson |
|
Aron Gunnar Ingason |
|
Atli Þór Sveinsson |
|
Baltasar Ari Hjálmarsson |
|
Bergþór Bjarmi Ágústsson |
|
Birkir Rafn Einisson |
|
Bjarki Þór Jóhannsson |
|
Bjarmi Kristjánsson |
|
Björn Már Jakobsson |
|
Daníel Snær Ryan |
|
Hafþór Andri Sigrúnarson |
|
Ingvar Þór Jónsson |
|
Jakob Ernfelt Jóhannesson |
|
Jóhann Már Leifsson |
|
Matthías Már Stefánsson |
|
Ormur Karl Jónsson |
|
Orri Blöndal |
|
Pétur Elvar Sigurðsson |
|
Róbert Andri Steingrímsson |
|
Róbert Máni Hafberg |
|
Stefán Darri Guðnason |
|
Uni Steinn Sigurðarson Blöndal |
|
Unnar Hafberg Rúnarsson |
|
Þorleifur Rúnar Sigvaldason |