Íshokkídeild Skautafélags Akureyrar semur við Emil Alengård

Emil Alengård nýr þjálfari SA og Elísabet Ásgrímsdóttir formaður íshokkídeildar SA við undirskriftin…
Emil Alengård nýr þjálfari SA og Elísabet Ásgrímsdóttir formaður íshokkídeildar SA við undirskriftina í dag.

Íshokkídeild Skautafélags Akureyrar hefur ráðið Emil Alengård sem yfirþjálfara meistaraflokka karla og kvenna ásamt U18 flokki félagsins fyrir tímabilið 2026–2027.

Emil kemur til SA frá Fjölni þar sem hann hefur starfað sem yfirþjálfari undanfarin ár og náð framúrskarandi árangri. Undir hans stjórn varð meistaraflokkur kvenna Íslandsmeistari árin 2024 og 2025 auk þess sem hann hefur komið að uppbyggingu yngri flokka félagsins og þróun leikmanna á öllum aldri. Áður en hann kom til Íslands starfaði hann hjá sænska stórliðinu AIK þar sem hann þjálfaði U18 og U20 lið félagsins auk þess að vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í Allsvenskan.

Emil er af mörgum talinn fremsti íshokkíleikmaður sem Ísland hefur alið. Hann lék stærstan hluta ferils síns í Svíþjóð auk þess að leika háskólahokkí í Bandaríkjunum og færir SA einstaka reynslu bæði sem leikmaður og þjálfari.

„Ráðning Emils er mikilvægur liður í áframhaldandi uppbyggingu íshokkístarfs SA. Markmiðið er að styrkja enn frekar þróun ungra leikmanna, efla tengingu milli yngri flokka og meistaraflokka og byggja áfram á þeirri sterku menningu sem einkennt hefur starf félagsins undanfarin ár,“ segir Beta, formaður íshokkídeildar SA.

Við bjóðum Emil og fjölskyldu hans hjartanlega velkomin til Akureyrar og hlökkum til samstarfsins á komandi tímabili.

Velkominn í SA Emil ❤️🏒