Upptökur frá leikjum aðgengilegar á ishokki.tv


Reynir Sigurðsson hefur undanfarna mánuði lagt mikla vinnu í upptökur og útsendingar úr Skautahöllinni á Akureyri, stundum við misjafnar undirtektir. Upptökur frá leikjum helgarinnar eru nú komnar á netið.

Leikir karlaliða Víkinga og Bjarnarins og kvennaliða SA og Bjarnarins frá liðinni helgi eru nú aðgengilegir á netinu á slóðinni ishokki.tv - og vonandi bætast fleiri við sem fyrst.

Heimasíðan þakkar Reyni fyrir þetta framtak og hvetur félagsfólk til að styðja hann og aðstoða eftir því sem kostur er því kynningarstarf sem þetta er mikilvægt fyrir félagið og framgang þeirra íþróttagreina sem stundaðar eru innan þess.