SA-stelpurnar í 18., 21. og 23. sæti


Elísabet Ingibjörg Sævarsdóttir varð efst SA-stúlknanna sem tóku þátt í Dragon Trophy í Slóveníu um helgina.

Keppni í Advanced Novice flokki, þar sem þær Elísabet Ingibjörg, Emilía Rós og Hulda Dröfn kepptu, lauk síðdegis í dag með frjálsa prógramminu.  

Keppni í stuttu prógrammi fór fram á föstudag. Emilía Rós Ómarsdóttir stóð best að vígi þeirra þriggja eftir fyrri daginn, var í 12. sæti, Elísabet Ingibjörg var í 20. sæti og Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir í 22. sæti.

Í frjálsa prógramminu náði Elísabet Ingibjörg 14. besta árangrinum og endaði samanlagt í 18. sæti. Emilía Rós fór niður í 21. sæti samanlagt og Hulda Dröfn í 23. sæti. Keppendur í þeirra flokki voru alls 27.

Lokaniðurstöðuna má sá hér, en einnig má sjá sundurliðaðar einkunnir allra keppenda í þeirra flokki hér: Stutta prógrammið - Frjálsa prógrammið.