Engar æfingar á ís í dag, afísæfing hjá 4. flokki hokkí kl. 16

Mynd: Ásgrímur Ágústsson (03.09.2013)
Mynd: Ásgrímur Ágústsson (03.09.2013)

Enn er unnið að viðgerð á dælumótor í Zamboni-ísheflinum. Staðfest er að Zamboni verður ekki klár í slaginn í dag, þriðjudag, og því falla allar æfingar á ís niður í dag. Óvíst er með miðvikudaginn.

Allar æfingar í íshokkí falla niður í dag, nema að afísæfing verður hjá 4. flokki og hefst hún kl. 16.

Upplýsingar verða birtar á heimasíðunni og Facebook-síðu Skautafélagsins þegar málin skýrast.