Akureyrar- og bikarmót 2017

Fjórðu umferð lokið.

Áramótamótið 2017

Laugardagur 30. desember kl: 17:30

SA Víkingar lögðu Esju í toppslagnum

SA Víkingar lögðu Esju á laugardaginn í toppslag Hertz-deildarinnar þar sem úrslit réðust ekki fyrr en í framlengingu. SA Víkingar hefðu þurft sigur í venjulegum leiktíma til að ná toppsætinu af Esju og eru því einu stigi á eftir Esju í deildarkeppninni . SA Víkingar gætu þó enn náð toppsætinu fyrir jól þó svo að leikurinn hafi verið sá síðasti fyrir SA Víkinga fyrir jól. SR hefur nú þegar gefið leikinn sem átti að fara fram á þriðjudagskvöld og fá Víkingar því 3 stig. Esja mætir Birninum annað kvöld og fari svo að Björninn steli stigum af Esju ná SA Víkingar toppsætinu án þess að spila eins einkennilega og það kann að hljóma.

Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir sigraði á Grand prix Bratislava 2017

Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir sigraði á Grand Prix Bratislava 2017 í flokknum Advanced Novice

Marta María Jóhannsdóttir kjörin skautakona LSA árið 2017

Í dag að lokinni jólasýningu var Marta María Jóhannsdóttir krýnd sem skautakona LSA árið 2017

Viðburðarík helgi hjá Listhlaupadeild SA!

Marta María Jóhannsdóttir var kjörin skautakona ársins hjá Listhlaupadeildinni og fékk hún viðurkenninguna að lokinni jólasýningu deildarinnar. Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir sigraði, fyrst Íslendinga, á ISU móti í listhlaupi. Hún tók þátt á Grand Prix móti í Bratislava um helgina og sigraði í flokknum advanced novice með 93,39 stig.

Ásynjur unnu verðskuldaðan sigur

Í gærkvöld áttust Ásynjur og Ynjur við í fimmta sinn í vetur. Fyrir viðureignina höfðu liðin unnið sinn leikin hvort, Ásynjur annan leikinn eftir framlengingu og vító. Þetta var jafnframt síðasti leikur liðanna fyrir jól.

Stórleikur Ásynja og Ynja í kvöld kl 19.30

Ásynjur taka í kvöld á móti Ynjum í toppslagnum í Hertz-deild kvenna í kvöld en leikurinn hefst kl 19.30 í Skautahöllinni á Akureyri. Ásynjur eru í efsta sæti deildarinnar einu stigi á undan Ynjum sem eiga þó leik til góða. Síðasti leikur liðanna var æsispennandi þar sem staðan var 8-8 að loknum venjulegum leiktíma en Ásynjur knúðu fram sigur í vítakeppni. Ekki missa af þessum stórleik, frítt inn og heitt á könnunni.

Leik Víkinga og Freyja frestað

Einn leikur í kvöld

Akureyrar- og bikarmót 2017

Ice Hunt eru Bikarmeistarar Magga Finns 2017