06.12.2021			
	
	Það verður toppslagur í Hertz-deild karla á þriðjudag þegar SA Víkingar taka á móti Skautafélagi Reykjavíkur í Skautahöllinni Akureyri kl: 19:30. SA Víkingar sitja í eftsta sæti deildarinnar en aðeins 2 stig skilja liðin að svo toppsæti Hertz-deildarinnar er í húfi. Selt verður inn í tvö 50 manna hólf.
 
	
		
		
		
			
					26.11.2021			
	
	Helgina 19.-21. nóvember var Íslandsmót barna og unglinga 2021 haldið í skautahöllinni í Laugardal. Á þessu móti keppa iðkendur í eftirfarandi aldursflokkum: Chicks, Cubs, Basic novice girls, Intermediate novice girls og Intermediate women. LSA átti iðkendur í öllum keppnisflokkum mótsins. Allir LSA keppendur enduðu á verðlaunapalli í þeim keppnisflokkum þar sem veitt voru verðlaun. Vegna hertra sóttvarnaraðgerða vegna Covid-19 þurftu allir keppendur, þjálfarar, áhorfendur, sjálfboðaliðar og allir þeir sem komu að mótinu að sýna neikvætt hraðpróf við komu í skautahöllina, sem var í fyrsta sinn sem þess hefur þurft, en með þessum ráðstöfunum var hægt að halda mótið. Lukkulega gátu allir 9 iðkendur LSA sýnt fram á neikvætt hraðpróf og sýnt áhorfendum hæfni sína á ísnum. 
 
	
		
		
		
			
					22.11.2021			
	
	Skautarar frá Skautafélagi Akureyrar unnu alla þrjá Íslandsmeistaratitlana á Íslandsmeistaramóti ÍSS sem fram fór í Laugardal um helgina. Freydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir sigraði í Advanced Novice, Júlía Rós Viðarsdóttir í Junior og Aldís Kara Bergsdóttir í Senior. Allar þrjár voru að verja titlana sína frá því í fyrra en Aldís Kara Bergsdóttir setti einnig stigamet á Íslandi á mótinu bæði í stutta og frjálsa sem og heildarstig.
 
	
		
		
		
			
					22.11.2021			
	
	Aldís Kara Bergsdóttir setti nýtt stigamet á Íslandsmeistaramóti ÍSS um helgina. Aldís Kara bætti Íslandsmetið í stutta prógramminu sem hún setti sjálf Finlandia Trophy í október en nú á laugardag fékk hún 47.31 stig. Hún stoppaði ekki þar því í gær bætti hún svo metið í frjálsa líka þegar hún fékk 88,83 stig og 136.40 stig í heildarskor sem er hæsta skor sem skautari hefur fengið á Íslandi.
 
	
		
		
		
			
					11.11.2021			
	
	Leikur í Hertz-deild karla á laugardag. SA Víkingar taka á móti Fjölni í Skautahöllinni Akureyri kl: 16:45. Miðaverð er 1000 kr. og 500 manna fjöldatakmanir. Forsala miða fer fram í gegnum miðasölu appið Stubb.
Grímuskylda í stúku og skráning í sæti.
 
	
		
		
		
			
					11.11.2021			
	
	Íslenska U18 landslið kvenna í íshokkí tekur þátt í 4 Nations móti í Laugardal nú um helgina. Mótið er alþjóðlegt æfingamót en auk Íslands eru þáttökuþjóðir Spánn, Bretland og Póland. Öllum leikjunum verður streymt á ÍHÍ TV. Fyrsti leikur Íslands er í kvöld kl. 20:30 þegar liðið tekur á móti Póllandi. Við eigum fjölmarga fulltrúa í liðinu og Sarah Smiley okkar er aðalþjálfari liðsins.
 
	
		
		
		
			
					28.10.2021			
	
	SA tekur á móti SR í Hertz-deild kvenna á laugardag kl. 16.45. SA er á toppi deildarinnar með 9 stig eins og Fjölnir en SR er enn án stiga. Miðaverð er 1000 kr. og frítt fyrir 16 ára og yngri. Forsala miða fer fram í gegnum miðasölu appið Stubb.
 
	
		
		
		
			
					21.10.2021			
	
	Það verður toppslagur í Hertz-deild karla á laugardag þegar SA Víkingar taka á móti Skautafélagi Reykjavíkur í Skautahöllinni Akureyri kl: 16:45. Síðasti leikur þessara liða var ótrúleg skemmtun og ekki ólíklegt að þessi verði það einnig enda toppsæti Hertz-deildarinnar í húfi. Miðaverð er 1000 kr. og frítt fyrir 16 ára og yngri. Forsala miða fer fram í gegnum miðasölu appið Stubb
 
	
		
		
		
			
					16.10.2021			
	
	Dagana 1.-3. október  fór fram Haustmót ÍSS 2021 sem er jafnframt fyrsta mót vetrarins, mótið var haldið í Egillshöllinni í Reykjavík. Átti LSA 11 keppendur að þessu sinni,  Stúlkurnar röðuðu sér í toppsætin í flestum keppnisflokkum og komu með silfurverðlaun í Basic Novice, gull og silfurverðlaun  í Intermediate Novice og Advanced Novice og gullverðlaun í  Intermediate Women og  Junior Women.
 
	
		
		
		
			
					12.10.2021			
	
	Um síðustu helgi fór fram Finlandia Trophy í Espoo í Finnlandi.
Aldís Kara Bergsdóttir var mætt til keppni, en þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur skautari keppir í Senior Women á mótinu.