Kvennaliðið hefur keppni í Toppdeildinni í dag

Meistaraflokkur kvenna hefur keppni í Toppdeildinni í dag þegar Íslandsmeistarar SR mæta í Skautahöllina á Akureyri. Eftirvæntingin er mikil í herbúðum SA. Nýr þjálfari hefur tekið við liðinu og nýjir leikmenn bæst við leikmannahópinn.  Stærstu breytingarnar á leikmannahópnum eru þær að landsliðsfyrirliðinn Sunna Björgvinsdóttir er komin heim í SA eftir veru í Svíþjóð og Hilma Bóel Bergsdóttir snýr aftur heim eftir nokkur ár hjá Fjölni og hlé frá íshokkíi á síðasta tímabili. Á móti eru tveir ungir landsliðsleikmenn farnir erlendis, Aðalheiður Ragnarsdóttir er farin til Svíþjóðar þar sem hún leikur með IF Sundsvall Hockey og Kolbrún Björnsdóttir er gengin til liðs við CP Sharks Mechelen í Belgíu, sem leikur í næstefstu deild Þýskalands. Að öðru leyti er kjarninn í liðinu sá sami frá síðasta tímabili og Shawlee Gaudreault er áfram aðalmarkvörður liðsins. Fjölmargir ungir og efnilegir leikmenn úr yngri flokkum SA eru jafnframt að banka á dyrnar og fá tækifæri til að vinna sér stærra hlutverk með meistaraflokki í vetur. Emil Alengård tók í sumar við sem yfirþjálfari meistaraflokka karla og verður spennandi að hvernig liðið mun þróast í vetur undir hans handleiðslu.

Vetrarstarfið hafið hjá Skautafélagi Akureyrar

Æfingar hjá Skautafélagi Akureyrar eru nú farnar á fullt samkvæmt æfingatöflu og starfsemi allra deilda að hefjast að nýju eftir sumarið. Byrjendaæfingar á listskautum og hokkí hefjast í þessari viku og eru allir nýir iðkendur hjartanlega velkomnir. Listhlaup Byrjendaæfingar hefjast mánudaginn 24. ágúst en æfingar eru á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:00–17:30. Upplýsingar og skráning: thjalfari@listhlaup.is Íshokkí Byrjendaæfingar hefjast fimmtudaginn 27. ágúst og verða á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:00–17:45. Upplýsingar og skráning: hockeysmiley@gmail.com

100 manns sprettu úr spori frá Skautahöllinni í gær

Það voru 100 manns sem komu saman við skautahöllina í gær og gengu eða hlupu til stuðnings hlaupurum Reykjavíkurmaraþonsins til minningar og áheita í málstað okkar ástkæru Sólveigar Huldu og barnabarns hennar litlu Sólveigar Huldu. Það var mögnuð appelsínugul fylking úr samfélaginu okkar sem spretti af stað frá höllinni í gærmorgun, mátti þar sjá sjálfboðaliða, dómara, leikmenn, stjórnarfólk, fjölskyldu, vini og velunnara Sólveigar og fjölskyldu.

Göngum í minningu Sollu

Við erum svo lánsöm að eiga sterkt og gott samfélag í Skautafélaginu okkar, fólk sem skautar, þjálfar, sýnir stuðning í verki, hlúir að mannauðnum og starfinu bæði hið ytra sem innra og svo fólk sem fær frábærar hugmyndir. Á laugardaginn fer Reykjavíkurmaraþon fram í borginni og eru nokkur úr okkar hópi sem ætla hlaupa þar í minningu okkar ástkæru Sólveigar Huldu og nöfnu hennar litlu Sólveigar Huldu. Mörg okkar hafa stutt málefnið en eiga ekki heimangengt til Reykjavíkur eða treysta sér ekki til að hlaupa en vildu gjarnan sýna samhug í verki. Því var það einkar ánægjuleg og góð hugmynd sem barst til okkar, að koma saman við skautahöllina og ganga, skokka eða hlaupa; upp Naustaveginn, að sjúkrahúsinu, niður Spítalaveginn og suður Aðalstrætið aftur að höllinni.

Nýtt tímabil handan við hornið.

Þó flestir iðkendur séu nú að taka þátt í æfingabúðum hjá okkur og nýtt hokkí tímabil handan við hornið er ekki úr vegi að rifja upp lokin á því liðna þar sem fréttaskrif frá lokahófi deildarinnar fórust fyrir vor ! þegar hefðbundnum æfingum lauk í vor héldum við að venju vormót í maímánuði fyrir U14 og yngri, þátttaka var góð, spilað í 4 deildum alveg niður í krílahóp. Í lok mótsins hélt Foreldrafélagið lokahóf fyrir þátttakendur, allir fengu verðlaun og viðurkenningu eftir veturinn auk þess sem viðurkenningar voru veittar fyrir góðan árangur í mótinu. Lokahóf fyrir eldri flokka var hins vegar haldið á Vitanum þar sem gestir skemmtu sér undir veislustjórn Arndísar og Sollu Smára, nutu ljúffengra veitinga, rifjuðu upp hápunkta úr leikjum vetrarins hjá hverjum flokki. Formaður deildarinnar hélt stutta tölu, verðlaun voru veitt fyrir frammistöðu auk þess sem meistara flokkarnir færðu sínu dygga aðstoðar fólk þakklætisvott fyrir veturinn. Það er alltaf gott að koma saman í lok tímabils, taka veturinn saman, treysta böndin og finna SA hjartað slá með öllum hinum.

Við þökkum komuna í Leikjaskóla SA

Skautafélag Akureyrar þakkar öllum börnunum og fjölskyldum þeirra fyrir komuna í leikjaskólann í júní. Báðar vikurnar seldust upp og það var frábært að sjá svona marga hressa krakka fylla Skautahöllina. Dagarnir einkenndust af leik, hreyfingu og alls konar skemmtilegum verkefnum. Það var mikið hlegið og umfram allt haft gaman saman. Við hlökkum nú þegar til næsta leikjaskóla og óskum öllum gleðilegs sumars!

Íshokkídeild Skautafélags Akureyrar semur við Emil Alengård

Íshokkídeild Skautafélags Akureyrar hefur ráðið Emil Alengård sem yfirþjálfara meistaraflokka karla og kvenna ásamt U18 flokki félagsins fyrir tímabilið 2026–2027.

SA hlýtur Kånken Youth Retention Award 2026 – stærsta viðurkenning sem barnastarf félagsins hefur hlotið

Skautafélag Akureyrar hlaut í gær eina virtustu viðurkenningu sem veitt er fyrir barnastarf og þátttöku í íshokkí þegar félagið var útnefnt handhafi Kånken Youth Retention Award 2026 á verðlaunahátíð samtaka evrópskra íshokkífélaga (EHC) í Prag. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn European Hockey Awards þar sem saman komu fulltrúar fremstu íshokkífélaga Evrópu. Fyrir hönd SA tók íþróttastjóri félagsins, Sarah Smiley, við verðlaununum ásamt eiginmanni sínum Ingvari Jónssyni.

Sunna Björgvinsdóttir komin heim í SA

SA hefur fengið öflugan liðsstyrk fyrir komandi tímabil en landsliðsfyrirliði Íslands, Sunna Björgvinsdóttir, skrifaði undir samning við félagið fyrr í dag. Með endurkomu Sunnu fær SA ekki aðeins einn besta leikmann landsins heldur einnig sterkan leiðtoga og mikilvæga fyrirmynd.

Nýjar stjórnir teknar til starfa hjá Skautafélagi Akureyrar

Aðalfundum Skautafélags Akureyrar og deilda félagsins er nú lokið og hafa nýjar stjórnir tekið til starfa fyrir komandi starfsár. Fundirnir endurspegluðu áframhaldandi uppbyggingu og öflugt starf innan félagsins þar sem iðkendum hefur fjölgað, árangur verið góður og mikil áhersla lögð á jákvæða menningu og þróun starfseminnar. Fram undan eru spennandi verkefni, ekki síst undirbúningur að 90 ára afmæli félagsins árið 2027.