Skautaæfingabúðir í sumar

Athugið.
Frekari upplýsingar vegna skautaæfingbúða í sumar koma hér inn á heimsíðuna eftir 6.júní.
Vinsamlega fylgist vel með.
stjórnin

Fjáröflun - Kleinubakstur

Þann 10. júní nk. á að steikja og selja kleinur til fjáröflunar fyrir Skautaæfingabúðirnar í sumar.
Við verðum niðri í Oddeyrarskóla og byrjum klukkan 8 um morguninn.
Þeir sem geta mætt í þessa fjáröflun eru vinsamlegast beðnir að láta Ally vita í síma 8955804.
Stjórnin

SA peysa

Halló!  vantar einhvern rauða æfingapeysu nr. M merkta SA. Það er ein svoleiðis peysa (ný) til sölu hjá Hörpu 863-7542

Kæru foreldrar og iðkendur!

Fyrirhugaðar eru æfingabúðir 23. júlí til 15. ágúst fyrir iðkendur SA í keppnisflokkum A, B og C!

Þeir keppnisflokkar eru: Junior, Novice, 12 ára og yngri A, 10 ára og yngri A, 8 ára og yngri A, 15 ára og eldri B, 14 ára og yngri B, 12 ára og yngri B, 10 ára og yngri B, 8 ára og yngri B, 15 ára og eldri C, 14 ára og yngri C, 12 ára og yngri C, 10 ára og yngri C og 8 ára og yngri C.

Æfingabúðirnar munu samanstanda af 2 ístímum á dag, 1 afístíma, fræðslu og vídeótímum. Kennt verður 6 daga vikunnar frá 9 - 15, frí á sunnudögum. Þjálfun á ís mun vera í höndum Helgu Margrétar og gestaþjálfara að utan. Þjálfun afís verður í höndum Helgu Margrétar og íslenskra gestaþjálfara. Gjald fyrir æfingabúðirnar verður á bilinu 40-50000 kr. en það skýrist fljótlega þegar þjálfaramál eru komin á hreint.

Mikilvægt er að þeir sem áhuga hafa skrái sig fyrir 1. júní!!

Skráning skal berast með tölvupósti á allyha@simnet.is en þar skal koma fram:
nafn barns:
kennitala:
heimilisfang:
heimasími:
aðstandandi/ur:
gsm:
e-mail:

Frekari upplýsingar berast fljótlega og er mikilvægt að fylgjast vel með heimasíðunni!

Íþróttagallar fyrir næsta tímabil

Foreldrafélagið ákvað að leita tilboða í íþróttagalla fyrir alla iðkendur hokkídeildarinnar. Samningar hafa nú náðst og þeir sem vilja fá galla næsta haust þ.e. fyrir næsta tímabil eru beðnir að fara í Sportver á Glerátorgi og máta stærðir. Þau í Sportver ætla að vera okkur innanhandar og munu skrifa niður pöntun og stærð hvers iðkanda ALLA ÞESSA VIKU. Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Maríu Stefánsdóttur í GSM 8614803 eða 6934957. Nú eru Allir hvattir til að eignast galla og sýna samstöðu í útliti og láta merki hokkídeildarinnar sjást sem víðast.  kveðja....María Stefánsd.

Fimmtudagsæfingar!

Á morgun verða æfingar sem hér segir: 3. og FG hópur (svellinu skipt í tvennt) milli 16 og 17, CDE hópur milli 17 og 18 og AB hópur milli 18 og 19. Þetta eru síðustu æfingar vetrarins! Munið svo eftir skautamaraþoninu um helgina!

Maraþon

Foreldrar og iðkendur (keppendur í  A, B, C) sem ætla að taka Þátt í marþoninu eru beðnir að koma í Skautahöllina og athuga hvernær iðkendur eru á svellinu. Einnig geta foreldrar þá skráð sig á vaktir.

Iðkendur í 1 og 2 hóp eru velkomnir á svellið á bilinu 11:00-14:00 á laugardaginn 12. maí. Það skal tekið fram að ekki er um kennslu að ræða heldur geta iðkendur skautað frjálst.

Aðalfundur Listhlaupadeildar

Aðalfundur Listhlaupadeildar verður haldinn fimmtudaginn 17. maí kl: 16:00 í Félagsherberginu í Skautahöllinni. Vonumst til að sjá sem flesta. Kosið verður í stjórn deildarinnar. Ath. breyttan fundartíma, :-)

Árshátíð Skautafélagsins

 Stefnt er að því að halda árshátíð Skautafélagsins...

Fundur!!!!!

Halló!!! Það verður fundur miðvikudagskv. kl:20:00 - 21:00  vegna maraþons og tilvonandi æfingabúða.