Coupe de Printemps 2011

Nú er hún Hrafnhildur Ósk farin til Lúxemborgar að keppa með landsliði Ísland. Hún á að keppa á sunnudagsmorgun og óskum við henni góðs gengis. Það fór myndarlegur hópur af skauturum út og þær eru:

Junior: Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir, Júlía Grétarsdóttir, Nadia Margrét Jamchi.

Novice Advanced: Agnes Dís Brynjarsdóttir, Vala Rún B. Magnúsdóttir

Novice A: Hrafnhildur Ósk Birgisdóttir, Kristín Valdís Örnólfsdóttir

 Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu ÍSS

Breytt plan um helgina

Við breyttum tímatöflunni um helgina því við fengum hokkí tímann líka

Óskum eftir skautakjól

Halló, Hildi vantar skautakjól. Á ekki einhver  skautakjól í nr. 128 - 132 ( 6-8 ára ) og vill selja eða lána fyrir næsta mót sem er 16. apríl. Ef þú átt kjól og villt selja ( lána) hann þá endilega hafðu samband.

Sonja sími 694-6153

HM kvenna lýkur í kvöld

Í kvöld lýkur heimsmeistarakeppni kvenna sem fram fer í Reykjavík.  Síðasti leikur mótsins verður viðureign Íslands og S-Kóreu.   Eftir svekkjandi tap gegn Nýja Sjálandi í fyrsta leik lagði íslenska liðið lið Rúmeníu að velli 3 – 2 og svo S-Afríku 5 – 1.   Án þess að hafa stúderað tölfræðina sérstaklega þá þarf liðið að sigra Kóreu helst með sem mestum mun auk þess sem Rúmenía þarf að leggja Nýja Sjáland að velli, til þess að við eigum möguleika á að komast uppúr deildinni.

Ice Cup: Tímabært að huga að skráningu

Það styttist í Ice Cup, síðasti skráningardagur liða er fimmtudagurinn 22. apríl. Ætlar þitt lið að vera með?

Íslandsmótið: Garpar Íslandsmeistarar

Ævintýralegur viðsnúningur í leik Garpa gegn Víkingum tryggði þeim titilinn.

Akureyrarmót SA

Skautahöllinni Akureyri

16. apríl

Fyrir A, B og C keppendur LSA

Lokadagur Skráninga og greiðslu keppnisgjalda er 04.04. 2011

Tap fyrir Nýja Sjálandi í fyrsta leik á HM kvenna.

Í gærkvöldi spilaði íslenska kvennalandsliðið sinn fyrsta leik á heimsmeistaramótinu í Reykjavík.  Mótherjarnir voru andfætlingar okkar frá Nýja Sjálandi og það er skemmst frá því að segja að okkar stúlkur biðu 3 - 1 ósigur.  Íslenska liðið fór þó vel af stað og skoraði fyrsta mark leiksins í fyrstu lotu en þar var á ferðinni Birna Baldursdóttir eftir sendingu frá Guðrúnu Blöndal.  Nýja Sjáland jafnaði leikinn fyrir lok lotunnar og bættu svo við tveimur mörkum fyrir leikslok.

B-hópur

Af-ís fellur niður hjá Söru Smiley í dag.

Íslandsmótið: Lokaumferð

Í kvöld, mánudagskvöldið 28. mars, fer fram fjórtánda og síðasta umferð Íslandsmótsins.