Nýtt tímabil handan við hornið.

Þó flestir iðkendur séu nú að taka þátt í æfingabúðum hjá okkur og nýtt hokkí tímabil handan við hornið er ekki úr vegi að rifja upp lokin á því liðna þar sem fréttaskrif frá lokahófi deildarinnar fórust fyrir vor ! Í maí s.l. þegar hefðbundnum æfingum var lokið héldum við að venju vormót fyrir U14 og yngri, þátttaka var góð allt niður í krílahóp, enda fátt skemmtilegra en spila hokkí. Í lok maí þegar síðustu leikir voru leiknir hélt Foreldrafélagið svo lokahóf fyrir þátttakendur, allir fengu verðlaun og viðurkenningu eftir veturinn auk þess sem viðurkenningar voru veittar fyrir góðan árangur í mótinu. Lokahóf fyrir eldri flokka var hins vegar haldið á Vitanum þar sem gestir skemmtu sér undir veislustjórn Arndísar og Sollu Smára, nutu ljúffengra veitinga, rifjuðu upp hápunkta úr leikjum vetrarins hjá hverjum flokki. Formaður deildarinnar hélt stutta tölu, verðlaun voru veitt fyrir frammistöðu auk þess sem meistara flokkarnir færðu sínu dygga aðstoðar fólk þakklætisvott fyrir veturinn. Það er alltaf gott að koma saman í lok tímabils, taka veturinn saman, treysta böndin og finna SA hjartað slá með öllum hinum.

Við þökkum komuna í Leikjaskóla SA

Skautafélag Akureyrar þakkar öllum börnunum og fjölskyldum þeirra fyrir komuna í leikjaskólann í júní. Báðar vikurnar seldust upp og það var frábært að sjá svona marga hressa krakka fylla Skautahöllina. Dagarnir einkenndust af leik, hreyfingu og alls konar skemmtilegum verkefnum. Það var mikið hlegið og umfram allt haft gaman saman. Við hlökkum nú þegar til næsta leikjaskóla og óskum öllum gleðilegs sumars!

Íshokkídeild Skautafélags Akureyrar semur við Emil Alengård

Íshokkídeild Skautafélags Akureyrar hefur ráðið Emil Alengård sem yfirþjálfara meistaraflokka karla og kvenna ásamt U18 flokki félagsins fyrir tímabilið 2026–2027.

SA hlýtur Kånken Youth Retention Award 2026 – stærsta viðurkenning sem barnastarf félagsins hefur hlotið

Skautafélag Akureyrar hlaut í gær eina virtustu viðurkenningu sem veitt er fyrir barnastarf og þátttöku í íshokkí þegar félagið var útnefnt handhafi Kånken Youth Retention Award 2026 á verðlaunahátíð samtaka evrópskra íshokkífélaga (EHC) í Prag. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn European Hockey Awards þar sem saman komu fulltrúar fremstu íshokkífélaga Evrópu. Fyrir hönd SA tók íþróttastjóri félagsins, Sarah Smiley, við verðlaununum ásamt eiginmanni sínum Ingvari Jónssyni.

Sunna Björgvinsdóttir komin heim í SA

SA hefur fengið öflugan liðsstyrk fyrir komandi tímabil en landsliðsfyrirliði Íslands, Sunna Björgvinsdóttir, skrifaði undir samning við félagið fyrr í dag. Með endurkomu Sunnu fær SA ekki aðeins einn besta leikmann landsins heldur einnig sterkan leiðtoga og mikilvæga fyrirmynd.

Nýjar stjórnir teknar til starfa hjá Skautafélagi Akureyrar

Aðalfundum Skautafélags Akureyrar og deilda félagsins er nú lokið og hafa nýjar stjórnir tekið til starfa fyrir komandi starfsár. Fundirnir endurspegluðu áframhaldandi uppbyggingu og öflugt starf innan félagsins þar sem iðkendum hefur fjölgað, árangur verið góður og mikil áhersla lögð á jákvæða menningu og þróun starfseminnar. Fram undan eru spennandi verkefni, ekki síst undirbúningur að 90 ára afmæli félagsins árið 2027.

Skauta- og íshokkí leikjanámskeið SA í júní

Í júní býður SA upp á skauta- og íshokkí leikjanámskeið fyrir öll börn fædd 2015–2019. Námskeiðin fer fram dagana 15.–19. og 22.-26. júní.

Artis Tannlæknastofa styrkir Vormót SA með nýjum vestum

Vormótið hjá hokkídeild SA stendur nú sem hæst en mótið er innanhússmót sem haldið er ár hvert í maí með það að markmiði að skapa skemmtilega og jákvæða keppni meðal iðkenda félagsins.

Úthlutað úr minningarsjóði Evu Bjargar Halldórsdóttur

Þann 26.apríl síðastliðin var úthlutað styrkjum úr Minningarsjóði Evu Bjargar Halldórsdóttur, fyrrum skautara og þjálfara hjá LSA, í annað sinn. Í ár voru þær Ylfa Rún Guðmundsdóttir og Petchohomboo Jonsson valdar úr hópi iðkenda fyrir framfarir og iðni á liðnu tímabili. Við óskum stelpunum innilega til hamingju og vonum að styrkirnir verði þeim að gagni í íþróttinni 

Ný stjórn kosin á aðalfundi íshokkídeildar

Aðalfundur íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar fór fram í félagssal Skautahallarinnar á mánudagskvöld. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf, þar á meðal skýrsla stjórnar um starfsemi liðins vetrar, ársreikningar deildarinnar og kosning nýrrar stjórnar.