10.06.2026
Skautafélag Akureyrar hlaut í gær eina virtustu viðurkenningu sem veitt er fyrir barnastarf og þátttöku í íshokkí þegar félagið var útnefnt handhafi Kånken Youth Retention Award 2026 á verðlaunahátíð samtaka evrópskra íshokkífélaga (EHC) í Prag.
Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn European Hockey Awards þar sem saman komu fulltrúar fremstu íshokkífélaga Evrópu. Fyrir hönd SA tók íþróttastjóri félagsins, Sarah Smiley, við verðlaununum ásamt eiginmanni sínum Ingvari Jónssyni.
27.05.2026
SA hefur fengið öflugan liðsstyrk fyrir komandi tímabil en landsliðsfyrirliði Íslands, Sunna Björgvinsdóttir, skrifaði undir samning við félagið fyrr í dag. Með endurkomu Sunnu fær SA ekki aðeins einn besta leikmann landsins heldur einnig sterkan leiðtoga og mikilvæga fyrirmynd.
27.05.2026
Aðalfundum Skautafélags Akureyrar og deilda félagsins er nú lokið og hafa nýjar stjórnir tekið til starfa fyrir komandi starfsár. Fundirnir endurspegluðu áframhaldandi uppbyggingu og öflugt starf innan félagsins þar sem iðkendum hefur fjölgað, árangur verið góður og mikil áhersla lögð á jákvæða menningu og þróun starfseminnar. Fram undan eru spennandi verkefni, ekki síst undirbúningur að 90 ára afmæli félagsins árið 2027.
19.05.2026
Í júní býður SA upp á skauta- og íshokkí leikjanámskeið fyrir öll börn fædd 2015–2019. Námskeiðin fer fram dagana 15.–19. og 22.-26. júní.
18.05.2026
Vormótið hjá hokkídeild SA stendur nú sem hæst en mótið er innanhússmót sem haldið er ár hvert í maí með það að markmiði að skapa skemmtilega og jákvæða keppni meðal iðkenda félagsins.
15.05.2026
Þann 26.apríl síðastliðin var úthlutað styrkjum úr Minningarsjóði Evu Bjargar Halldórsdóttur, fyrrum skautara og þjálfara hjá LSA, í annað sinn.
Í ár voru þær Ylfa Rún Guðmundsdóttir og Petchohomboo Jonsson valdar úr hópi iðkenda fyrir framfarir og iðni á liðnu tímabili.
Við óskum stelpunum innilega til hamingju og vonum að styrkirnir verði þeim að gagni í íþróttinni
13.05.2026
Aðalfundur íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar fór fram í félagssal Skautahallarinnar á mánudagskvöld. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf, þar á meðal skýrsla stjórnar um starfsemi liðins vetrar, ársreikningar deildarinnar og kosning nýrrar stjórnar.
07.05.2026
Nýr Zamboni íshefill var tekinn í notkun í Skautahöllinni í dag og leysir þar með af hólmi þann gamla sem hefur þjónustað félagið dyggilega í 23 ár. Nýja vélin er sérsmíðuð fyrir félagið í Zamboni verksmiðjunni í Bandaríkjunum og flutt til landsins í gegnum Zamboni Europe í Svíþjóð. Tæknimaður frá fyrirtækinu fylgdi vélinni til landsins, sá um gangsetningu hennar og tryggði að allt væri eins og það ætti að vera áður en hún fór í sína fyrstu ferð á svellinu. Svellagerðarmenn félagsins fengu jafnframt kennslu á vélina og nýjan búnað hennar.
06.05.2026
Boðað er til aðalfundar Skautafélags Akureyrar fimmtudaginn 14. maí kl. 18.00 í félagssal Skautahallarinnar. Hefðbundin aðalfundarstörf skv. lögum félagsins.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta en allir skuldlausir félagsmenn 16 ára og eldri hafa atkvæðisrétt, málfrelsi, tillögurétt og kjörgengi til stjórnarstarfa á aðalfundi félagsins.
04.05.2026
Skautafélaga Akureyrar boðar til aðalfunda allra deilda félagsins dagana 11.-13. maí í félagssal Skautahallarinnar.
Tímasetningar aðalfunda deilda:
Íshokkídeild mánudaginn 11. maí kl. 18:00
Krulludeild þriðjudaginn 12. maí kl. 18:00
Listskautadeild miðvikudaginn 13. maí kl. 18:00