Sunna Björgvinsdóttir komin heim í SA

SA hefur fengið öflugan liðsstyrk fyrir komandi tímabil en landsliðsfyrirliði Íslands, Sunna Björgvinsdóttir, skrifaði undir samning við félagið fyrr í dag. Með endurkomu Sunnu fær SA ekki aðeins einn besta leikmann landsins heldur einnig sterkan leiðtoga og mikilvæga fyrirmynd.

Nýjar stjórnir teknar til starfa hjá Skautafélagi Akureyrar

Aðalfundum Skautafélags Akureyrar og deilda félagsins er nú lokið og hafa nýjar stjórnir tekið til starfa fyrir komandi starfsár. Fundirnir endurspegluðu áframhaldandi uppbyggingu og öflugt starf innan félagsins þar sem iðkendum hefur fjölgað, árangur verið góður og mikil áhersla lögð á jákvæða menningu og þróun starfseminnar. Fram undan eru spennandi verkefni, ekki síst undirbúningur að 90 ára afmæli félagsins árið 2027.

Skauta- og íshokkí leikjanámskeið SA í júní

Í júní býður SA upp á skauta- og íshokkí leikjanámskeið fyrir öll börn fædd 2015–2019. Námskeiðin fer fram dagana 15.–19. og 22.-26. júní.

Artis Tannlæknastofa styrkir Vormót SA með nýjum vestum

Vormótið hjá hokkídeild SA stendur nú sem hæst en mótið er innanhússmót sem haldið er ár hvert í maí með það að markmiði að skapa skemmtilega og jákvæða keppni meðal iðkenda félagsins.

Úthlutað úr minningarsjóði Evu Bjargar Halldórsdóttur

Þann 26.apríl síðastliðin var úthlutað styrkjum úr Minningarsjóði Evu Bjargar Halldórsdóttur, fyrrum skautara og þjálfara hjá LSA, í annað sinn. Í ár voru þær Ylfa Rún Guðmundsdóttir og Petchohomboo Jonsson valdar úr hópi iðkenda fyrir framfarir og iðni á liðnu tímabili. Við óskum stelpunum innilega til hamingju og vonum að styrkirnir verði þeim að gagni í íþróttinni 

Ný stjórn kosin á aðalfundi íshokkídeildar

Aðalfundur íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar fór fram í félagssal Skautahallarinnar á mánudagskvöld. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf, þar á meðal skýrsla stjórnar um starfsemi liðins vetrar, ársreikningar deildarinnar og kosning nýrrar stjórnar.

Nýr Zamboni íshefill tekinn í notkun í Skautahöllinni

Nýr Zamboni íshefill var tekinn í notkun í Skautahöllinni í dag og leysir þar með af hólmi þann gamla sem hefur þjónustað félagið dyggilega í 23 ár. Nýja vélin er sérsmíðuð fyrir félagið í Zamboni verksmiðjunni í Bandaríkjunum og flutt til landsins í gegnum Zamboni Europe í Svíþjóð. Tæknimaður frá fyrirtækinu fylgdi vélinni til landsins, sá um gangsetningu hennar og tryggði að allt væri eins og það ætti að vera áður en hún fór í sína fyrstu ferð á svellinu. Svellagerðarmenn félagsins fengu jafnframt kennslu á vélina og nýjan búnað hennar.

Aðalfundur Skautafélags Akureyrar 14. maí

Boðað er til aðalfundar Skautafélags Akureyrar fimmtudaginn 14. maí kl. 18.00 í félagssal Skautahallarinnar. Hefðbundin aðalfundarstörf skv. lögum félagsins. Félagsmenn eru hvattir til að mæta en allir skuldlausir félagsmenn 16 ára og eldri hafa atkvæðisrétt, málfrelsi, tillögurétt og kjörgengi til stjórnarstarfa á aðalfundi félagsins.

Aðalfundir íshokkídeildar, listskautadeildar og krulludeildar dagana 11.-13. maí

Skautafélaga Akureyrar boðar til aðalfunda allra deilda félagsins dagana 11.-13. maí í félagssal Skautahallarinnar. Tímasetningar aðalfunda deilda: Íshokkídeild mánudaginn 11. maí kl. 18:00 Krulludeild þriðjudaginn 12. maí kl. 18:00 Listskautadeild miðvikudaginn 13. maí kl. 18:00

Minningarorð um Birgi Val Ágústsson

Í dag var borinn til grafar Birgir Valur Ágústsson, heiðursfélagi í Skautafélagi Akureyrar. Biggi Ágústar var alla tíð mikill skautafélagsmaður og sérstakur áhugamaður um íshokkí. Hann var formaður félagsins á árunum 1970 – 1975 og lagði sitt lóð á vogarskálarnar við rekstur félagsins og uppbyggingu þess. Hann kom einnig að uppbyggingu skautasvæðisins að Krókeyri og tók virkan þátt í undirbúningi fyrir vélfrysta skautasvellið sem vígt var í janúar 1988, sem var stórt framfaraskref fyrir félagið. Sem athafnamaður í bænum studdi hann ásamt bræðrum sínum félagið af heilum hug, og þegar keppt var í Reykjavík fékk liðið oftar en ekki lánaða bíla til að komast á leikstað svo eitthvað sé nefnt. Einnig var fluttur inn íshokkíbúnaður og kylfur þegar slíkt var erfitt að komast yfir hér á landi og síðar sett upp verslun með skautabúnaði. Biggi keppti lengi í íshokkí með félaginu og hélt áfram að æfa langt fram eftir aldri, allt fram á sjötugsaldur. Á ísnum var hann kappsamur og það var sérstaklega ánægjulegt að spila með honum síðustu árin. Við minnumst hans á fjær bláu, kallandi á pökkinn með heldur frjálslega túlkun á rangstöðureglum. Enn þann dag í dag er talað um „að taka Bigga Ágústar á þetta“ þegar menn skila sér ekki í vörnina og bíða frammi. Í Bigga áttum við hauk í horni sem fylgdist ætíð vel með gengi félagsins og þegar maður rakst á hann á förnum vegi var íshokkíið alltaf til umræðu. Biggi var gerður að heiðursfélaga Skautafélags Akureyrar á 60 ára afmæli félagsins árið 1997. Að lokum vil ég fyrir hönd Skautafélags Akureyrar þakka fyrir ómetanlegt framlag til félagsins sem og félagsskapinn í ísnum, og sendi eftirlifandi eiginkonu hans, Ingunni Þóru Baldvinsdóttur, börnum þeirra, fjölskyldu og vinum, innilegar samúðarkveðjur.