Íslenska karlalandsliðið hefur leik á HM í Búlgaríu

Íslenska karlalandsliðið í íshokkí hefur leik á Heimsmeistaramótinu í II deild B á morgun í Sofíu í Búlgaríu. Liðið hefur verið við æfingar á staðnum frá því á föstudag og undirbúningur gengið vel. Í gær spilaði Ísland æfingaleik gegn heimamönnum í Búlgaríu og lauk leiknum með öruggum 10–2 sigri íslenska liðsins.

Skautarnir hennar Eddu Indriðadóttur komnir í Skautahöllina

Heiðursfélagi Skautafélags Akureyrar og margfaldur Íslandsmethafi í skautahlaupi afhenti félaginu um helgina skautahlaupsskautana sína sem hún notaði við flest þau afrek sem hún vann til á ferlinum. Skautana afhenti hún félaginu á vormóti ÍSS sem fram fór um helgina og eru þeir nú til sýnis í Skautahöllinni ásamt verðlaunapeningum hennar og keppnisnúmerinu hennar, 13.

SA Jötnar Íslandsmeistarar U22 liða

U22 lið Jötna tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn um helgina eftir sigur á Húnum í Egilshöll. Jötnar unnu fyrri leikinn 5–2 í tvíhöfðanum og tryggður sér þar með Íslandsmeistaratitlinn en þetta var sjöundi sigur liðsins á Húnum í vetur.

Leik 3 í úrslitakeppninni frestað til morguns vegna veðurs!

Leikur 3 í úrslitakeppninni í Toppdeild kvenna sem fara átti fram í dag er frestað til morguns vegna veðurs! Leikurinn verður leikinn á föstudag kl. 16:45. Við sjáumst í stúkunni ❤️🤍🖤 Forsöluverð í Stubb 2500 kr fyrir fullorðna. Miðaverð 3000 kr. í hurð. 15 ára og yngri 1000 kr. Ath almenn árskort gilda ekki á úrslitakeppnina Gull- og Silfurkort gilda og halda sínum sætum. 🎟 https://stubb.is/events/b890gn 🍔Hamborgarasalan hefst 30 mín fyrir leik í Miðgarði.

Breyttur leiktími - fyrsti leikur í úrslitum byrjar kl 17:00

Athugið breyttan leiktíma – fyrsti leikur í úrslitum kvenna hefst kl. 17:00 vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna.

Forsala miða hafinn á fyrsta leik í úrslitakeppnina í Toppdeild kvenna

Úrslitakeppni kvenna hefst á laugardag í Skautahöllinni á Akureyri. Miðasala hafinn á #leik 1 í Stubb.

Úrslitakeppnin í Toppdeild kvenna hefst á laugardag

Úrslitakeppnin í Toppdeild kvenna hefst næsta laugardag, 21. mars. Skautafélag Akureyrar unnu deildarmeistaratitilinn og hafa því heimaleikjaréttinn. SA tapaði aðeins einum leik í deildarkeppninni en leikirnir við SR hafa flestir verið jafnir og spennandi svo búast má við hörkuviðureign í úrslitakeppninni. Leikið verður svo til skiptis heima og að heimann þangað til annað liðið nær að vinna þrjá leiki og tryggja sér þannig Íslandsmeistaratitlinn í íshokkí.

Forsala miða á leik #2 hafinn í Stubb

Miðasala á stórleikinn - leik#2 í úrslitakeppninni, fimmtudaginn 12. mars, er hafinn í Stubb.