ATH! Breyttur æfingatími um helgina hjá 1.-3. flokki!

Vegna Íslandsmeistaramótsins núna um helgina (22.-23. janúar 2005) og þjálfara- og dómaranámskeiðs verða Iveta, Helga, Audrey, Heiða, Ásta og Erika ekki að þjálfa um helgina. Berglind Rós mun sjá um þjálfunina hjá bæði eldri og yngri flokkum ásamt stelpum úr 1. og 2. flokki sem munu aðstoða hana.

Einnig er breytt tímatafla hjá 1.-3. flokki!!!

Laugardagurinn 22. janúar

Kl. 9-10: 3. flokkur

Kl. 10-11: 1. og 2. flokkur

Sunnudagurinn 23. janúar

Kl. 17-18: 3. flokkur

Kl. 18-19: 1. og 2. flokkur

Jazzballett á Bjargi

Það verður jazzballett á Bjargi fyrir 1.-3. flokk þriðjudaginn 18. janúar og þriðjudaginn 25. janúar á sömu tímum og voru fyrir áramót.

U20 Tekið af vef ihi.is

Ísland 8 S-afríka 1 og bronsið var okkar

Ísland vann brons í kvöld með glæsilegum sigri á Suður afríku 8 - 1 strákarnir hrukku aftur í gang og sýndu sínar bestu hliðar eftir tvo slaka leiki gegn Mexíkó og Nýja Sjálandi, fyrir mótið var lið Suður Afríku álitið það sterkasta í mótinu þannig að sigurinn var sætur og liðið sýndi snilldar takta á köflum. Við verðlauna afhendingu á mótsslitum var Aron Leví Stefánsson kjörinn besti maður liðsins, Gauti Þormóðsson var stigahæsti maður mótsins með 14 stig 10 mörk og 4 stoðsendingar og Birkir Árnason var kjörinn besti varnarmaður mótsins. Nánar má lesa um leikinn á síðu IIHF www.iihf.com

U 20 tekið af vef ihi.is

Ísland - Nýja Sjáland; 3 - 5

Lið Nýja Sjálands kom ákveðið til leiks á móti þreyttum og óeinbeitum íslendingum. Mistök við innáskiptingar voru okkur dýrkeypt. Okkar strákar áttu góða spretti inni á milli en þeir duguðu ekki til. Gauti Þormóðsson átti 2 góð mörk og Birkir Árnason 1 mark. Þessi leikur var mikil vonbrigði, svo að það sé ekki meira sagt, þar sem við áttum góðan möguleika á sigra Nýsjálendinga og hafna í 2 sæti.
Besti leikmaður íslenska landsliðsins var valinn Aron Leví Stefánsson sem átti stórleik í markinu.

U 20

U 20 tapaði fyrir nýja sjálandi 5-3. Meira um leikinn síðar.

3 flokkur

3 flokkur tapaði gegn A-lið bjarnarins 0-15. Eitthvað var þráðurinn stuttur í okkar mönnum sem og í bjarnarmönnum, og þó nokkrir sendir í sturtu. Næst eiga strákarnir leik við S.R. og vonandi sýna þeir betri leik. ÁFRAM S.A.

Kvennaflokkur!!!

Kvennalið S.A. varð í kvöld íslandsmeistarar. Þær sigruðu björninn 6-2 í leik sem var hin ágæta skemmtun á að horfa. Meira um leikinn síðar.

Leikir

Já það er rétt það er hokki dagur í dag. Í dag mun kvennaliðið okkar að etja kappi við birnurnar að sunnan og ætlumst við ekkert annað en sigur. 3 flokkur mun einnig keppa við björninn og vonandi sýna strákarnir sitt rétta andlit og vinna björninn. Leikirnir verða spilaðir kl 18:00 Mfl. KVK SA-Björninn og svo kl 20:00 3fl. SA-Björninn. Við hvetjum ALLA til að mæta og styðja ykkar menn og konur. ÁFRAM S.A.!!!!!

U20 fréttir. teknar af vef ihi.is

14.01.2005
Ísland 4 - Mexíkó 10

Því miður var það þannig að okkar menn áttu ekkert svar við sterku liði Mexíkó. Leikurinn fór vel á stað hjá okkur og eftir innan við mínútu vorum við búnir að ná forskoti 1-0 með glæsilegu marki Gunnars Guðmundssonar sem var að skora sitt fyrsta mark í alþjóðlegri keppni, en Adam var ekki lengi í paradís því að áður en fyrsti leikhluti var úti var staðan orðin 1-5 fyrir Mexíkó.

Drengirnir okkar voru nú ekki að spila sinn besta leik og var þeim refsað grimmilega fyrir þau mistök sem að þeir gerðu. Skautahöllin hér í Mexíkó borg var smekk full 4500 manns sem að hvöttu heimamenn óspart og létu vel í sér heyra. Annar leikhluti fór 2-3 fyrir Mexíkó og sá þriðji 2-1 þannig að úrslit leiksins voru 4-10 Mexíkó í vil. Þrátt fyrir að okkar drengir hefðu ekki verið að spila sinn besta leik var fljótt ljóst að við ofurefli var að etja Mexíkanska liðið var einfaldlega bara betra í dag, allir leikmenn hefðu þurft að eiga topp leik ef að við hefðum átt að eiga séns.

Mörk Íslands skoruðu þeir Gunnar Guðmundsson, Gauti Þormóðsson, Daníel Eriksson og Sindri Már Björnsson. Steinar Páll Veigarsson var kjörinn besti maður íslenska liðsins í leikslok og fékk að launum fallegan platta frá Mexíkanska íshokkísambandinu.

Meiri landsliðsfréttir af vef ÍHÍ

13.01.2005
Frábær skoðunarferð

Landsliðið okkar átti frídag í dag og var farið að skoða forna menningu Asteka. Farið var svona 50 kílómetra út fyrir Mexíkó borg. Þetta var rosalega skemmtileg ferð sem að allir höfðu sérstaklega gaman af. Það að skoða þessa fornu menningu og upplifa hana var ótrúlegt. Það að standa efst á sólar-pírmamýdanum þar sem að mannfórnir voru til forna verður þessum drengjum ógleymanleg reynsla. Allir höfðu sérlega gaman af þessu og það að standa þarna og spá í þessa frábæru menningu sem þarna var alsráðandi á þeim tíma þegar að við vorum í torfkofum með moldargólfi í kulda og vosbúð, það var umhugsunarvert og í raun ótrúlegt til þess að hugsa að menningin þeirra var upprunnin frá því 200 fyrir krist (hvar vorum við þá?). Á myndinni er Sigurjón tækjastjóri að virða fyrir sér útsýnið. Þegar þetta er skrifað um klukkan 10 um kvöld eru allir komnir með höfuð á kodda til að safna kröftum fyrir átökin annað kvöld en þá mætum við Mexíkó heimamönnum klukkan 20:30 að staðartíma eða klukkan hálf fjögur aðra nótt að íslenskum tíma. ÁFRAM ÍSLAND