Jötnar stálu stigi af SR

Á þriðjudaginn fóru Jötnar suður yfir heiðar og öttu kappi við Skautafélag Reykjavíkur.  Markmið ferðarinnar var að ná stigi af þeim sunnlensku og það tókst.  Hins vegar voru Jötnar grátlega stutt frá því að ná öllum stigunum en liðið var einu marki yfir þegar aðeins örfáar mínútur voru eftir af leiknum.  SR tókst hins vegar að jafna skömmu fyrir leikslok og skoruðu svo gullmark miðja vegu inn í framlenginguna.


Leikurinn var annars jafn allan tíman eins og tölur gefa til kynna og liðin skiptust á að skora.  Jötnar voru í töluverðum brottrekstrarvandræðum og SR skoraði öll sín mörk í venjulegum leiktíma í „power-play“ og nýttu sér liðsmuninn vel.

Söludagur hjá Everest

Á laugardag 22.janúar verður söludagur á Mondor skautavörum frá Everest. Opið verður milli kl. 13 og 16 í Stallatúni 4 íb 102. Nýjar vörur m.a. nýjar Mondor skautabuxur, stuttbuxur, bolir, leggings o.fl.

30% afsláttur af skautakjólum og skautapilsum 15% afsláttur af öðru.

uppl. í síma 662 5260 og rakelhb@simnet.is

Allir velkomnir

Rakel 

Nýársmót Krulludeildar

Karlar og konur, vanir og óvanir halda áfram að krulla, Nýársmótið í fullum gangi og vonandi enn fullt af konum að koma í fyrsta, annað, þriðja, fjórða...

Skil á öskudagspöntunum

Allir þeir sem  eru með öskudagspantanir eru beðnir að skila þeim pöntunum sem eru komnar  í skautahöllina á morgunn miðvikudag kl. 16:30 og 17:30. Þeir sem að ekki eru búnir eiga að koma með þær sem komnar eru og restina á miðvikudaginn í næstu viku..

Allý / Kristín 

Nýársmót Krulludeildar og "Á svellið stelpur!"

Nýársmótið heldur áfram - og átakið "Á svellið stelpur!"

Stelpurnar okkar

Stelpurnar okkar stóðu sig með prýði á RIG og óskum við þeim öllum til hamingju með góðan árangur. Á þessu sterka móti þar sem margir erlendir keppendur tóku þátt fengum við ein gullverðlaun, Hrafnhildur Lára vann sinn flokk, Novice B með 25,46 stig og óskum við henni til hamingju með sigurinn.

Í flokki 12 ára A
- Guðrún Brynjólfsdóttir, 5 sæti
- Hrafnhildur Ósk Birgisdóttir, 7 sæti
- Elísabet Ingibjörg Sævarsdóttir, 9 sæti
- Sara Júlía Baldvinsdóttir, 13 sæti

Í Novice
- Urður Ylfa Arnarsdóttir, 8 sæti

Í Novice B
- Hrafnhildur Lára Hildudóttir, 1 sæti
- Birta Rún Jóhannsdóttir, 6 sæti
- Lóa Aðalheiður Kristínardóttir, 9 sæti

Glæsilegur árangur stelpur!!!!!!!

Öll úrslit mótsins má finna á slóðinni http://skautafelag.is/list/gogn/RIG2011/index.htm

Fullt af myndum er að finna á http://www.flickr.com/photos/skautafelag/collections/72157625698494121/ 

Systkynin Ivana og Peter

Sigurvegarar RIG mótsins í listhlaupi á skautum með flest stig eru systkinin Peter Reitmayer með 130,47 stig og Ivana Reitmaverova með 94,07 stig frá Slóvakíu.  Ivana keppir í Senor flokki og Peter í Junior flokki.  Þau hafa æft á Íslandi í vetur, en móðir þeirra er þjálfari listhlaupadeildar Skautafélags Akureyrar.  Það er gífurlegur fengur að fá svo sterka keppendur til keppni hér á landi, og hvað þá að hafa þau líka á æfingum!  

Nánari upplýsingar má finna á http://skautafelag.is/list/ og www.rig.is

Víkingar á toppi deildarinnar eftir sigur á Birninum; 5 - 1

Í gærkvöldi fór fram skemmtilegur leikur hér í Skautahöllinni á Akureyri þegar Bjarnarmenn komu í heimsókn og mættu Víkingum.  Það var orðið nokkuð langt síðan Víkingarnir spiluðu síðast gegn sunnanliði og því var nokkur spenna í mannskapnum.  Bjarnarmenn voru sjálfum sér líkir, kraftmiklir og vinnusamir en að þessu sinni var það ekki að skila miklu.  Víkingarnir voru hins vegar upp á sitt besta en voru þó lengur að hrista af sér Bjarnarmennina en þeir höfðu gert ráð fyrir.  Björninn var nokkurn veginn með sitt sterkasta lið, þó vantaði þeirra besta varnarmann, Róbert Pálsson sem hefði styrkt vörnina þeirra verulega.  Mættur var þó „gamall“ refur, Daði Örn Heimsson, sem er þeirra lang-elsti leikmaður fæddur 1983, en lítið fór fyrir honum í leiknum.

Skautabuxur - töskur og mjúkar hlífar

Enn eru til skautatöskur munstraðar og einlitar, Mondor skautabuxur svartar  og mjúkar skautahlífar

Allý - allyha@simnet.is / 8955804

Vetrarmót ISS

Vetrarmót ÍSS 18-20 febrúar!

Skrá skal keppendur á Vetrarmót ÍSS 18-20 feb Hér. Skráningarfrestur keppenda á Vetrarmót ÍSS rennur út 20 janúar og ekki verður tekið við skráningum eftir það. keppnisgjöld eru 3500 fyrir eitt prógram og 5500 fyrir tvö prógröm. Leggja skal keppnisgjöld inn á reikning 1145-26-3770, kt: 510200-3060, senda kvittun á didda@samvirkni.is. Hafi keppandi ekki skráð sig að skráningarfresti loknum né borgað keppnisgjöldin er litið svo á að skautarinn ætli ekki að taka þátt. Samþykkt var á foreldrafundi A og B keppenda að hópferð verður farin á Vetrarmót og því þarf fararstjóra í þessa ferð.