Ice Hunt og Mammútar með forystu

Mynd: HI (2012)
Mynd: HI (2012)


Tvö lið eru ósigruð eftir fyrstu tvær umferðinrar í Gimli Cup krullumótinu, Ice Hunt og Mammútar. Þessi lið mætast í næstu umferð.

Tveir af leikjum annarrar umferðar unnust með eins stigs mun og annar þeirra eftir aukaumferð. Mammútar og Ice Hunt hafa unnið báða leiki sína til þessa, en þessi lið mætast í næstu umferð. Freyjur og Dollý eru bæði með einn vinning.

Úrslit 2. umferðar:
Freyjur - Dollý 9-8
Mammútar - Víkingar 12-3
Skytturnar - Ice Hunt 7-8

Þriðja umferð fer fram mánudagskvöldið 25. nóvember:
Ice Hunt - Mammútar
Dollý - Skytturnar
Víkingar - Freyjur

Ísumsjón: Mammútar, Skytturnar, Freyjur

Öll úrslit og leikjadagskrá (excel-skjal)