Ice Cup: Úrslitaleikir hefjast kl. 14.30

Nú er öllum leikjum lokið á Ice Cup nema sjálfum úrslitaleikjunum. Keppt verður um þrjú efstu sætin í A-deild og efsta sætið í B-deild.

The Others (ÍSL/SVI) unnu The OC from DC (USA) í morgun, og þar með fóru The Others með fullt hús í gegnum forkeppnina. Þrátt fyrir tapið í morgun endaði The OC from DC í 2. sæti í forkeppninni og því mætast þessi lið aftur í leik um sigurinn á mótinu. Hack to the Future (USA/ENG) mæta Víkingum (ÍSL) í leik um bronsið. Í B-deildinni verða það Ice Hunt (ÍSL) og Plainfield (USA) sem spila um sigurinn.

Excel-skjal með úrslitum og öðrum upplýsingum.