Byrjun tímabils

Æfingar eru nú að hefjast aftur samkvæmt tímatöflu og starfsemi deilda félagsins er komin á fullt og framkvæmdir í húsinu á lokametrunum. Byrjendaæfingar í listhlaupi eru byrjaðar og eru á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:00-17:30 en aðrar æfingar eru samkvæmt tímatöflu. Byrjendaæfingar í íshokkí hefjast á fimmtudag og verða alla þriðjudaga og fimmtudag kl. 17:00-17:45 og aðrar æfingar samkvæmt tímatöflu. Krulluæfingar hefjast í September og verða auglýstar sérstaklega á heimasíðu krulludeildar.

Keppnistímabilið hefst fyrstu helgina í september en fyrsti leikur vetrarins verður í Hertz-deild kvenna þegar SA tekur á Fjölni laugardaginn 2. September kl. 16:45 og strax á eftir þeim leik mætir SA U18 liðið Fjölni. Fyrsta mótið í listskautum verður helgina 22.-24. September þegar haustmótið fer fram í Egilshöll en Íslandsmótið verður svo haldið hjá okkur daganna 24.-26. nóvember.

Almenningstímarnir byrja í húsinu fyrstu helgina í september og fyrsta skautadiskó vetrarins föstudaginn 1. September.

Framkvæmdir við félags- og æfingaaðstöðu er á lokametrunum og má búast við að félagið taki rýmin til notkunar um einhvern tímann í september svo það eru spennandi tímar fram undan hjá Skautafélaginu öllu og skemmtilegur skautavetur.