Ynjur unnu Bjarnarstúlkur í gærkveldi

Hrund fagnar fyrr í vetur Ljósm.Ásgrímur Ágústsson
Hrund fagnar fyrr í vetur Ljósm.Ásgrímur Ágústsson

Ynjur voru með undirtökin í leiknum frá upphafi til enda og unnu nokkuð auðveldan 9 - 2 sigur.   Mikill styrkleikamunur er á akureysku liðunum og þeim sunnlensku en allar viðureignir á milli landshluta ljúka með stórsigri þeirra norðlensku. 

Loturnar í gær fóru 4 - 1, 2 - 1 og 3 - 0.  Atkvæðamest í markaskorun hjá Ynjum var Diljá Sif með 4 mörk en Birna Baldurs var með 4 stoðsendingar og Hrund Thorlacius með 1 mark og 3 stoð.

Hjá Birninum skoruðu Hanna Rut og Ingibjörg, en sú fyrrnefnda var að spila sinn fyrsta leik í vetur eftir meiðsli.