Vorsýning listhlaupadeildar á miðvikudag


Miðvikudaginn 23. apríl verður hin árlega Vorsýning listhlaupadeildar. Disneyþema verður að þessu sinni. 

Sýningin ber heitið Disney gleði á ís og snýst um þekkt Disneylög og ævintýri. Þátttakendur í sýningunni eru iðkendur allra flokka í listhlaupi, en auk þeirra koma inn nokkrir unglingalandsliðsmenn í íshokkí og sýna listir sínar með iðkendum listhlaupadeildar. 

Sýningin hefst kl. 18.30 á miðvikudag. Vakin er athygli á að ekki er posi á staðnum og því þarf að greiða með reiðufé. Aðgangur kostar 1.000 krónur, en 500 krónur fyrir 12 ára og yngri. Frítt er fyrir 6 ára og yngri.

Í hléi verður Foreldrafélagið með veitingasölu.