Vodafone RED býður í skautapartí


Laugardaginn 5. apríl verður frítt á skauta í Skautahöllinni á Akureyri í boði Vodafone RED. Opið verður kl. 15-18.

Vegna uppsetningar á ljósabúnaði og fleiru verður ekki hægt að opna á skautasvellið um leið og keppni á Frostmóti listhlaupadeildar lýkur. Í stað hins hefðbundna almenningstíma kl. 13-17 verður því opið kl. 15-18 þennan laugardag. Um kl. 16.30 munu iðkendur í listhlaupi sýna listir sínar á svellinu. 

Það er Vodafone RED sem býður í skautapartí. Stemningin verður rauð og eru gestir hvattir til að koma rauðklæddir. Frítt er á svellið þennan dag, ásamt skautaleigu á meðan birgðir endast.