Vinnukvöld í Skautahöllinni

Krullufólk er hvatt til að mæta í Skautahöllina síðdegis og/eða í kvöld og hjálpast að við að undirbúa fyrir Krulludaga og Ice Cup.

Vinna við svellið til undirbúnings fyrir Krulludaga og Ice Cup hófst í gærkvöldi og heldur áfram í dag og næstu daga. En það er margt fleira sem þarf að gera og er krullufólk hvatt til að mæta í Skautahöllina síðdegis í dag og/eða í kvöld og hjálpast að við hin ýmsu verk sem vinna þarf. Meðal annars verður slegið upp plasthýsinu okkar og aðstaðan þar gerð klár, huga þarf að viðhaldi á skortöflum og fleiru slíku, skerpa þarf krulluhringina með málningu og fleira í þeim dúr.

Allar vinnufúsar hendur velkomnar!